Miðvikudagur, 30. desember 2009
Velkomin til Afríku beibí.
Jamm og jú.
Það er orðið ansi langt síðan ég kom heim frá Afríku, eða um 2 mánuðir og ekkert hef ég nennt að setja inn myndir eða segja frá ferðinni. Í gær manaði ég mig loks upp í að setja saman myndaalbúm og skrifa teksta undir.
Áramót á morgun og jólin búin. Ég vildi að það væri svona mánuður á milli jóla og nýárs því mér finnst gaman að náttfatast og horfa á Dexter. En þetta tekur víst allt enda og á mánudaginn fer ég í skólann aftur og Ingþór í vinnu. En það er nú langt í mánudaginn ennþá. ![]()
Á morgun ætlum við að hafa kalkún og meðlæti í gamlársmatinn. Það koma jafnvel nokkrar fagrar stúlkur og borða með okkur. Svo verður spilað og horft á aðra skjóta upp kökum. Annars er lítið skotið upp hérna vanalega og lítið fútt miðað við á Íslandi. Á nýársdag ætla ég svo að horfa á annála og Skaupið og borða afganga. Ljúfa líf.
Afríkumyndir! Njótið.
Svalbaunin out
![]() |
| Africa Fall 2009 |
Mánudagur, 9. nóvember 2009
Hello again my Icelandic Brothers and Sisters it’s me the man from the UK
I am the UK 1980s pop national champion and I am now ready to take over the world with Iceland first on my list so if any of you good people would like to challenge my pop knowledge here I am.
It must be British pop and rock from the 1980s you can ask me lyrics, singer, songwriter, and year of the song, if I win then the deal is you must arrange for me to marry one of your fine ladies, if I lose I will come to Iceland and paint your house or walk your seals or boil your sheeps head.
Ok here it is then bring it on
If any of you fine looking ladies would like to send me a picture of yourselves {no dolphins or small furry animals please} then forward them through Ingthor.
Good luck with the challenge my friends I look forward to hearing from you
Regards Simon your English brother in worldwide pop domination
Laugardagur, 7. nóvember 2009
Netlaus í namibíu
Loksins fann ég net sem ég get stolist í, er á næturvakt og get stungið tölvunni í samband.
Ég var búinn að skoða þennana stað sem við erum á á netinu áður en við komum hingað, Walvis bay. Leit svakalega vel út á netinu, slatti af hótelum eða gistiheimilum. Svo fljúum við frá Cape town og hingað, þegar að flugvélin fór að lækka flugið fyrir aðfæug fer ég að líta út um glugan, ekkert nema sandur, eiðimörk svo langt sem augað eygir. Flugvöllurinn er úti í miðrið eyðimörk og ekket nema sandur, við erum pikkaðir uppp og okkur keyrt í bæinn, okkur er keyrt á gistiheimilið eða þetta er svona afgirt svæði með slatta af húsum sem eru leigð út (mikið af svona í afríku). Við erum ekki með internet, það er 2-3 km í bæinn og við bíllausir, enginn matsölustaður eða nein afþreying í nágreninu.
Aðstaðan er svo sem ekki slæm, við erum með hús, eins og lítið sumarhús, við erum búnir að leigja bíl og getum farið hvert sem við viljum, þannig að þetta er í góðu lagi.
Bærinn er samansettur af hvítu og svörtu fólki, talsverður iðnaður virðist vera í kringum höfnina þar sem við erum að vinna, um helgar er varla fólk á ferli. Bærinn er öruggur og hægt að labba um án þess að vera böggaður eða að eiga á hættu að vera rændur. Ég er með einum breta í húsi (Simon) og Torstein og Steve eru í hinu húsinu, við Simon erum á nætur vakt og gengur vinnan nokkuð vel. Við fengum að vísu dótið okkar 5 dögum of seint þannig að við verðu að halda okkur vel að verki svo að við getum klárað áður en borpallurinn fer, en núna er verið að vinna í honum við bryggju.
Við reiknum með að vera í eina viku í viðbót, gæti verið að við klárum næturvaktina á næstu dögum og förum á dagvakt með hinum strákunum.
Á daginn fer hitinn yfir 30° en á nóttini fer hann niður undir 10°, í fyrradag var kalt og vindur, svo verður mjög rakt á nóttini.
Núna sitjum við Simon og leggjum kapal í tölvunni, ég ný búinn að borða en Simon borða ekkert, honum blöskrar hvað ég borða mikið. „þú gerir ekkert annað en að borað“ segir hann sem er að sjálfsögðu ekki rétt.
Hello my name is Simon,I work for JDR cables along with Ingthor,we are here in Namibia doing some work and having a pretty good time,Ingthor takes a lot of stick from me for being Iclandic eating the heads of sheep and whales and puffins,all of which we cannot do back in the UK even if we wanted to try it which we dont.
I am trying to get Ingthor educated in the art of decent music such as soul and motown and not the pop music from the 1980 s which a lot of Europeans seem to think is ok,it is not and if you ever come to the UK keep the music a secret or you may be in trouble!
This is my first time on Ingthor.com if you want to hear more from me or contact me please feel free to do so even if you want to make fun of me i am up for it
Keep the faith my European brothers and sisters and remember we had culture club before you did
Simon
Mánudagur, 25. maí 2009
Ísland er land þitt... (gestablogg)
Það er dumbungur eins og alltaf. Ég sit á kaffihúsi og horfi út í grámann. Ísland er land þitt... Búið að kjósa. Tími Vinstrimanna (með stórum staf!) ku vera kominn. Eins og tilveran væri ekki nógu snautleg fyrir. Búið að draga saman kostnað í utanríkismálum, jamm við skárum niður útgjöld til þróunaraðstoðar, hinir fátæku eiga sér ekki jafn öfluga talsmenn og sveitarfélög í Bretlandi. En nú ætlum við að fara og leika við stóru strákana í ESB, sýna þeim hvernig á að stjórna fisksveiðum sko. Við erum svo gegt góð í því! Jæja, kaffið er í það minnsta gott, ætti ég að fá mér köku með? Eða ekki, það er kannski svona 2007-legt, ha? Kleinu, það er ok, hún er alíslensk. Fæ mér kleinu, Ísland er land þitt... Vinkona mín gengur inn. Íklædd merkjafötum frá A-Ö, pantar tvöfaldan latte og speltköku með lífrænum döðlum. Gefur skít í alla 2007 fordóma. Hefur reyndar alveg tekist að hundsa kreppuna og allt hjal henni tengt. Fannst 2007 bara gott tímabil. Horfir á mig ísmeygilega og hvíslar samsærislega, jæja Björgólfur Thor bara búinn að skíra! Ha? Skíra hvað, hvern? Jááá, segir hún með vandlætingartóni, soninn auðvitað, heitir Lórenz Logi, sætt ha? Akkúrat segi ég aumlega og bít í kleinuna mína, veit ekki alveg hvað ég á að segja í svona aðstæðum. Ísland er land þitt... Hvað er annars að frétta? O svo sem ekkert nýtt segir hún. Agalegt þetta kreppudæmi samt, haaa, segir hún á innsoginu. Nú, segi ég, h.u.b. á innsoginu líka, átti ekki von á þessum vinkli í samræðunum. Já, hugsaðu þér, London bara kölluð Reykjavík on Thames. Svaka kreppa þar líka víst, haaa. Já segi ég, þetta eru vondir tímar. Bý mig undir alvöruþrungnar umræður um félagslegar afleiðingar kreppu, vaxandi ofbeldi, fátækt, skerðingu á lífsgæðum.....finn hvernig svört þoka umlykur tilveru mína. Jiiii, segir þá vinkona mín og horfir á mig með uppglennt augu. Hvernig heldurðu að aumingja Bretadrottningin hafi það?
Kleinan er búin, kaffið líka. Ég stend upp og kveð vinkonu mína. Sett hettuna á mig, það er komin ausandi rigning. Ísland er land þitt... Horfi á fólkið í kringum mig sem gerir hvað það getur til að verjast rigningunni sem að vanda kemur úr öllum áttum. Já, hvernig skyldi sú gamla hafa það?
Æja
Laugardagur, 20. desember 2008
Vinir
Takk kall.
Bjarni Þór Haraldsson
Sunnudagur, 9. mars 2008
Gestablogg
Staður Bergen, heima hjá I&O. Við Bubba sitjum hlið við hlið með sitt hvora fartölvuna, hún að ná í tónlist frá bróa og ég að blogga. Kveikt á kamínunni og nýlagað kaffi í pressukönnunni og auðvita súkkulaði á borðinu. Erum að fara herða okkur í að fara í gönguferð, engin rigning eins og er en þungskýjað. Skíðaferðina var alveg klikkuð. Ótrúlegt hvað ég er góð á skíðum m.v. að ég hef örsjaldan stigið á skíði. Mín síðasta skíðaferð var með skíðaklúbbnum Óðni í Oddskarð... árið 1997...!! Trúlega hef ég lært eitthvað í þeirri ferð því ég gat ekki verið aumari en Óðinn og fór því allt sem hann fór. Núna elti ég Bubbu í allar brekkurnar nema svörtu brekkurnar.... langaði ekki að koma fótbrotin heim. Frábærar móttökur hjá Þórunni og Bjössa. Takk takk fyrir mig.
Rigndi helling í Bergen í gær, er ég víst ekkert voða tillitsöm á regnhlífinni. Við stelpurnar fórum að shoppa..... úff.. hvað er auðvelt að eyða peningum. Datt inn í útivistarbúð. Hér eru Bergens-vörurnar vinsælar. Svo er ekki hægt að fara hingað nema kíkja í H&M. Í gærkvöldi fórum við út að borða, á steikhús. Fékk mér hjartarfillet, alveg hrikalega gott. Ekki arða eftir á disknum hjá mér. Tókum misheppnað rölt í bænum og endum aftur á veitingastaðnum þar sem Bubba fór á kostum.....!!
Verð að láta koma fram að Gísli var betri bróðinn á brettinu.... stóð sig bara helv... vel. Hélt að þetta væri ekki sport fyrir hann. En þeir bræður eru tilbúnir núna í aðra skíðaferð að ári. Enda aðeins farið að draga úr harðsperrunum og Ingþór er farinn að geta setið.
kv. Tobba
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Gestablogg Fröken Ólafís Zoëga
Það sem ég skrifaði ekki.
Bloggarar
Tenglar
Umsjón vefkerfis
Hafa samband
Ingthor Sigurdarson
Løbergsveien 105
5073 bergen
Norge
mobil: +47 97516441
heima: +47 55590327
Ísland: +354 6632214
ingthorsig@gmail.com
MSN : ingthorsig@hotmail.com
Skype : boribolla
Myndirnar mínar
Heimsóknir
© Copyright 2006, nerdwg.org design by Luka Cvrk, port for s9y by nerdwg.org


