Sunnudagur, 3. janúar 2010
Blogg
Ég henti út þremur tenglum úr tengla safninu mínu rétt í þessu. þetta voru Olla (hætt að blogga, bloggar stundum hjá mér) Rán (varð fyrir árás) og hver var sá þriðji, ég man það ekki...
Svo eru nokkrir sem eru í hættu....
Bætti inn:
Ástu og Stjáni í USA
Kristján frænda
Eiður á Bragðavöllum
Einnig henti ég út tengli á bloggara frá Djúpavogi, þar voru nánast allir hættir eða búnir að skipta um blogg.
Miðvikudagur, 9. desember 2009
Heima um jólin
Ég er ekki að fara til Egyptalands á morgun eins og til stóð, ég er ánægður með það því að ég var farinn að ímynda mér að ég myndi ekki komast heim fyrir jól og Olla sæti uppi með tengdaforeldra sína hérna um jólin á meðan ég færi í safarí á úlvölda um eyðimerkur Egyptalands.
Í dag fékk ég líka e-mail frá yfirmanni í englandi þar sem hann var að áframsenda þakkar bréf frá viðskiptavini sem við vorum að vinna fyrir í Afríku, ekki leiðinlegt að fá svona e-mail.
Varúð.... Nörda blogg.
Í dag hélt ég framhjá Microsoft með Google, ekki í fyrsta skipti en svona gerist bara. Ég setti sem sagt upp Google wave fyrir stuttu, ég var ekki ánægður með virknina og ætlaði að gefa frat í það, svo ákvað ég að setja upp Google Chrome og á byrjaði wav-ið að virka allmennilega, og þegar betur var að gáð var Google Chrome einfaldlega mikið skemmtilegri og hraðvirkari browser en IE sem ég hef verið með síðustu árin.
Og ekki fyrir svo löngu bauð Rán mér DropBox, sem er btw allgjör snilld. Ef þú þarft að deila einhverju með einhverjum mæli ég með DropBox.
Tenglar:
Google Chrome (mæli með BETA útgáfu)
Extensions fyrir Chrome
Ég á nokkra boðsmiða á Google wave, bara að senda mér e-mail
Um daginn setti ég svo upp Media Monkey sem er tónlistar spilari og einstaklega gott til að flokka og taka til í tónlistinni þinni, með þessu keyri ég Last.fm sem er önnur snilld fyrir nörda eins og mig, last.fm heldur utan um hvað þú hefur verið að spila, einnig getur þú sett inn á heima síðuna þína hvað þú ert að spila og hvað þú hefur verið að spila. Hver vill ekki hafa svona fínar græjur í tölvunni sinni.
Fimmtudagur, 1. október 2009
Olla biður að heilsa
Talaði við Ollu í kvöld, allt gott að frétta og frí um helgina, allir á ströndina og sjálfsagt verður eitthvað notað af sólarvörn.
Ég er að fara til Englands á þriðjudaginn, veit ekki hvað ég verð lengi, aumingja Lísa sem þarf að búrast ein í íbúðinni okkar, kanski getur hún farið á Norsku einkamála síðurnar og fundið sér viðhald á meðan hún er í Bergen.
Í nördaskap mínum um daginn keypti ég nýja fjarstýringu. Logitech harmony 525. Ég er hrikalega ánægður með fjárfestinguna, búinn að setja 5 fjarstýringar niður í kassa og nú þarf ég bara þessa einu. T.d. ef að ég ætla að horfa á sjónvarpið þá þarf ég að kveikja á sjónvarpinu og afruglaranum (allt orðið stafrænt) til að skipta um rá þarf ég að gera það á afruglaranum, en til að hækka nota ég sjónvarpið. Með nýju fjarstýringunni vel ég aðgerð sem heitir horfa á sjónvarp, þá kviknar bæði á sjónvarpinu og afruglaranum í einu, svo skipti ég um rá og hækka eins og mér sé borgað fyrir það á þess að þurfa að vera að skipta um fjarstýringar eða hugsa um hvað ég sé með í höndunum. 1 fjarstýring og málið dautt.
Þess má geta að ég er að blogga á sjónvarpstölvuna, er að bíða eftir að kastljósið með Helga byrji. (nauðsinlegt að koma því að).
Fór í mat til Jónasr og fjölskyldu í gær, kjúlli og góðgæti. Í kvöld eldaði ég fiskbúðing með kartöflum, át ekki yfir mig. Næst er það að elda Íslenska kjötsúpu með norsku lambakjöti og íslendkum súpujurtum, geri það þegar að ég kem heim frá UK.
Ég vað að lesa um SMÁÍS se ætla að kæra ólölegt niðurhal, sérstakt átak er í gangi núna þegar að fangavaktin er komin í loftið. Ekki ætla ég að réttlæta það að það sé í lagi að dreifa höfundarvernduðu efni á netinu en það sem mér líkar ekki við SMÁÍS er að þei fá borgað fyrir hvern einasta tóma geisladisk sem seldur er á Íslandi, Mp3 spilurum og hörðum diskum. Sjá þessa blogg færslu.
Ætla að skella mér í sturtu og leggjast svo fyrir framan TV-ið og leika mér með fjarstýringuna og éta ostapopp.

Föstudagur, 11. september 2009
hvað eru börnin ykkar að gera í tölvunni ?
Í gær horfðum við Olla á Opra þar sem var verið að fylgjast með lögreglu við störf, lögreglan var að ransaka barnaklám og gerði húsleit, í ljós kom að 18 ára sonurinn á heimilinu var með tölvuna fulla af viðbjóði, hann var handtekinn og málið fór sína leið.
Umræða fór í gang og meðal annars var rætt um foreldra og hvort að þeir hefðu einhverja hugmynd um hvað börnin þeirra vru að gera í tölvunni. Ég fór að spá aðeins í þetta og tel nokkuð líklegt að í flestum tilfellum hafi barnið meiri kunnáttu en foreldrarnir og eigi þar með mjög auðvelt með að fela hvað það er með í tölvunni.
hvað er hægt að gera ? jú það eru til ýmis forrit sem eru ætluð til að stjórna notkun tölvunnar, sjálfur hef ég ekki skoðað þessi forrit en lesið eitthvað um þau.
Fyrir þá foreldra sem eru með börn sem eru að byrja í skólum myndi ég ráðleggja að læsa tölvum að einhverju leiti, nota þar til gerð forrit til að stjórna því sem barnið er að gera í tölvunni. Ég rakst á ágætis grein sem fjallar einmitt um þetta (á Íslensku) ætla að leifa mér að byrta hana hérna í von um að fólk átti sig á hættunum og ruglinu sem finnst á netinu.
Eitt atriði sem er nýtt í Windows Vista og tengist mjög þeirri umræðu sem hefur verið í gangi undanfarið um öryggi barna á Netinu gæti verið ástæða til þess að uppfæra. Hér er um að ræða innbyggða "foreldra stjórnun" (e. parental control) Vista. Sem fer fram í gegnum aðgangskerfi stýrikerfisins. Með því er hægt að setja reglur um notkun hvers og eins notanda. Mælt er með því að allir sem nota tölvuna séu skráðir notendur og hver og einn noti sitt notenda auðkenni. Sem þýðir að notandi með stjórnendaréttindi (e. administrator) er ekki notaður dags daglega, en sá notandi getur stýrt eiginleikum annara notenda. Barnið eða börnin eru svo skráð sem sér notendur á kerfið og er þannig að hægt er að skilgreina ýmsa eiginleika í Vista fyrir barnið.
Eftirfarandi er listi yfir þau atriði sem foreldrar geta stillt og tengjast foreldrastjórnun Vista:
- hægt að láta Vista skrá notkun valinna notenda
- það er hægt að setja síu á þær síður sem barnið má skoða
- hægt er að banna niðurhal skráa
- hægt er að skilgreina þá tíma sem barnið má ekki nota tölvuna
- þegar leikir eru ræstir þá getur Vista skoðað hvort að leikurinn henti notandanum
- hægt er að leyfa eða banna keyrslu ákveðinna forrita
Þessi innbyggða foreldrastjórnun er alls ekki hin eina sanna lausn, en er svo sannarlega stórt skref til framfarar.
Munið að foreldrar hafa að geyma lykilinn að öryggi barna sinna á Netinu, rétt eins og annarsstaðar í daglegu lífi þeirra.
Ég mæli með því að allir foreldrar/forráðamenn að kynni sér "Öryggi heima fyrir" síðu Microsoft sem er að finna hér: http://www.microsoft.com/athome/security/default.mspx og þar undir: http://www.microsoft.com/mscorp/safety/technologies/familysafety/default.mspx
Eins er Childnet International kjörinn staður til þess að kynna sér öryggismál barna og unglinga.
Microsoft bendir sérstaklega á þrjá vefi sem uppsprettu góðra upplýsinga um þetta efni:
Svo er hægt að finna fjölda tengla á vef SAFT: http://www.saft.is/tenglar/
Síðan má benda á tvö vel þekkt Netsíuforrit:
Fengið af síðu: http://viggo.blog.is/blog/viggo/entry/112066/ Þó svo að ég hafi byrjað þetta blogg á barna klámi er það kanski ekki mergur málsins, heldur fyrir foreldra að vakna og kynna sér þessa möguleika, vera á undan barninu og hafa hugmynd um hvernig á að stemma stigum við tölvu notkun barna.Þriðjudagur, 8. september 2009
Skrapp í búðina
Miðvikudagur, 29. júlí 2009
Frá Króknum til Rvík
Í gær keyrðum við frá Sauðárkrók til Reykjavíkur, ég hafði á orði við Ollu að á leiðinni á Sauðárkrók hafi ég mæt svo mörgun eineygðum bílum svo að við ákváðum að telja eineygðu bílana á leiðinni til baka. Við töldum um 40 bíla á leiðinni fyrir utan þá sem voru ekki með nein ljós. Ég gerðist leiðinlegi bílstjórinn og blikkaði einaygðu bílana, fékk ekki hiksta á leiðinni en sjálfsagt hafa margir spurt sig hversvegna væri verið að blikka þá. Í Noregi er maður blikkaður ef að maður er eineygður, það lætur mann allavega vita að eitthvað er að því að fólk athugar sjaldnast hvort að ljósin eru í lagi, en það er ykkar skylda að athuga með ljósin og ef mig mynnir rétt á maður að athuga ljósin áður en keyrt er af stað.
Allavega fannst mér þetta hrikalega hátt hlutfall, inni í þessari talningu voru nokkrir fluttningabílar.
Ég setti þetta inn á feisbókina mína og fékk smá viðbrög en þau voru á þessa leið.
- leiddist þér á leiðinni ?
- Það er kreppa á Íslandi;(
- voru þeir samt ekki allir með GLERaugu??
Er fólki alveg sma um hvort að bílinn sé einaygður eða ekki, er þér alveg sama ?
Ætlar þú að blikka bílinn sem þú mætir ef að hann er eyneygður ? hefur þú athugað ljósin hjá þér ?
það þar ekki annað en að keyra upp að vegg eða skoða þetta þegar að þú ert fyrir aftan annan bíl stopp á ljósum, þegar að þú bakkar í stæði getur þú skoðað afturljósin, bæið park og bremsuljós.
Þetta var ljósa pistill dagsins, verslunnarmanna helgi framundan, traffik og hraði.
Góðar stundir.
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Bloggarar
Á síðunni minni er ég með tengla á nokkra bloggara sem ég les reglulega,nú er svo komið að meira en helmingurinn eru óvirkir ( bloggarar) og ekkert nýtt kemur frá þeim.Ég verð að fjarlægja þá af listanum mímum.
- Olla Svalbaun HÆTT
- Birgitta SJALDSÉÐ
- Bjarni og Elva SJALDSÉÐ
- Jón Knútur SJALDSÉÐUR
- Dröfn HÆTT
- Rán VAR AÐ VAKNA AFTUR TIL LÍFSINS
- Andrés Skúlason KLÁRLEGA SÁ DUGLEGASTI
- Heiðar SJALDSÉÐUR
- Óli Bjöss vAR DUGLEGUR, ER ÞAÐ EKKI LENGUR
- Andrea Kristín MYNDIR
- Orkubloggið STENFDUR FYRIR SÍNU
- Birkir og Stebba GET EKKI KLAGAÐ
En ef þið eruð með einvherja sem ættu að vera á þessum lista megið þið setja það inn í kommenta dálkinn.
Einnig er ég með tengla á bloggara frá Djúpavogi, ég hef ekki uppfært þann lista lengi, sennilega einhverjir dottnir út og fleiri sem ættu að vera skráðir á þann lista.
Laugardagur, 7. febrúar 2009
Gafst upp á Internet Explorer
Eftir síðustu uppfærslu af IE var hann nánast ónothæfur, alltaf að frjósa og hrikalega seinn, ég þoldi ekki ástandið og skipti yfir í browser frá vinum mínum í Google. Setti upp google crome sem er mjög hraðvirkur og einfaldur, virkar allavega enn sem komið er.
(bætt við 1 tíma seinna) Djö lenti í hrikalegamikklum vandræðum út af því að crome er að setja sjálfvirkt inn passorð og upplýsingar í óútfyllta reiti, gagnagrunnurinn lokaðist og þessi færsla læstist, hvað verður það næst, verð ég að fara að nota FireFox ?
Fór á æfingarleik með Brann í gær, hefði betur sleppt því, Neisti frá Djúpavogi hefði litið vel ú vellinum við hliðina á Brann. Ekki miera um að, þetta var æfingaleikur og vonandi verður þetta betra í sumar.
Er að fara út að græja síðustu atriðin fyrir Gabon ferðina, þarf að láta kíkja á símann minn og svo ætla ég að kaupa mér nýjan bakpoka fyrir fartölvuna. Vona bara að það verði net eða símasamband þarna í Afríku.
Ætla að taka upp nýjan lið á blogginu, laugardagslagið. Stela hugmyndini frá Bjarna sem stal henni frá einhverjum öðrum.
Mánudagur, 19. janúar 2009
nördablogg - iTunes - tölva
Ég hef ekki sóst eftir því að nota búnað frá apple en alltaf annaðslagið sett upp iTunes, ástæðan er sú að ég fæ reglulega hroll fyrir Windows Media Player. Ég er búinn að prufa nokkra spilara og var einn sem heillaði mig nokkuð en það var media monkey hann bauð upp á ansk skemmtilega möguleika en svo vantað annað sem é gsóttist eftir og þar með varf hann út úr minni tölfu eftir frekar stutt stopp, Winamp hef ég ekki notað síðan Win95 var og hét, tek ekki upp á því að setja það upp núna. iTunes er núna komið með frábæran möguleika sem heitir GENIUS en með þessum hnappi getur þú valið eitt lag úr lagalistanum þínum og svo sér itunes um að velja lög sem eru í skemmtilega svipuðum stíl og fíling og lagið sem þú valdir. Nú er ég með nokkuð stórt safn laga u.þ.b. 50.000 lög og verða lagalistarnir hjá mér ótrúlega skemmtilegir, maður á það til að velja alltaf sömu lögin og sömu flytjendurna, nú sér iTunes um þetta fyrir mig og ég er hinn ánægðasti.
Tölvan er farin að virka svín vel, fyrir utan óhljóðin sem ég er búinn að ákveða að séu út af gölluðu hljóðkorti, en ég er búinn að vera í skrifum við DELL og búinnaðgera allskonar kúnstir og nú vilja þeir að ég noti tölvuna í save mode og sjái hvort að hljóðið komi. Ég get ekki unnið á tölvuna í save mode og ætla ekki að prufa þetta, þeir geta bara tekið tölvuna og skipt um þetta fjárans hljoðkort.
Ég setti upp IE8 er enn að aðlagst honum, ég setti líka upp eld refinn en ég er bara ekki að fíla hann.
Hennti upp nýrri heimasíðu um helgina sem ég er ótrúlega sáttur við, eigandinn var líka sáttur og á nú bara eftir að setja inn efni og koma henni í loftið.
Fimmtudagur, 30. október 2008
Facebook á Íslensku...
Veljið þennan tengil og samþykjið viðbótina http://www.new.facebook.co
Færðu 100033 mail á dag frá facebook ?
Veldu stillingar - skráningastillingar - tilkinningar - veljið af á þeim valmöguleikm sem þið viljið að sendi ekki e-mail á ykkur. Takið eftir því að á efsta dálknum ( facebook) er hægt að velja (sýna fleiri), veljið það og þá koma fleiri möguleikar í ljós.
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Ekki hringja í þetta númer !
Ég las það í blöðunum í gær að það væri svoldið um það að það væri hringt í fólk úr svipuðu númeri og hérna fyrir neðan, um leiðog fólk svarar er skellt á. Sumri eru vanir því að hringja til baka og aðrir svo forvitnir að þeir verða að hringja til baka til að kanna hver sé að hringja.
Það getur reinst dýrt að hringja til baka í þetta númer því að startgjaldið getur verið allt að 80 nkr eða 1220 krónur.
A primer on the 00 88213 business
“88213” is “virtual” country code that functions much like “44” UK or “33” for France. What makes such virtual country codes attractive for “creative entrepreneurs” is that many telephone operators in many countries charge their subscribers a high fee per minute to route calls to those virtual country codes. In Ireland for instance, from 9th July 2007 all calls from Vodafone mobiles to +88213 numbers
Halda áfram að lesa "Ekki hringja í þetta númer !"
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Er í frákvörfum
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Vírus
Ég var að lesa um nígeríusvindl á netinu áðan, það höfðu einhverjir komist inn á emailið hjá einhverjum kalli og sent á alla í addressbókini að hann væri staddur einhverstaðr í útlöndum og væri í miklum vandræðum og vantaði pening strax. Hljómar ekki vel en það er svo létt að komast hjá þessu. EKKI GEFA UPP LEINIORÐIN ÞÍN. ALLDREI... sumar síður poppa upp og bjóða þér að skoða myndasíðu frá félagaþínum (msn vírus) þegar að þú ýtir á hlekkinn biðj þeir um leiniorðið þitt til að komast inn á síðuna.... Kommon, hversvegna ættir þú að þurfa að gefa upp þitt leiniorð til aðkomast inn á síðu hjá einhverjum öðrum. Ótrúlegt en satt það eru svo margir búnir að brenna sig á þessu.
MUNA.... EKKI GEFA UPP AÐGANGSORÐIÐ AÐ PÓSTI, BLOGGI EÐA HVERJU SEM ER...
Svo las ég um vírus sem herjar á netið núna, flest alla vírusa er hægt að losn við með mis mikklu veseni þó, en núna er kominn vírus sem setur leiniorð á skjölin þín, myndir og tónlist. til að geta opnað myndirnar þarft þú að borga fyrir leiniorðið og því miður en það eina sem er hægt að gera til að fá myndirnr sínar aftur. þannig að ég vil benda ykkur á það lesendur góðir að taka afrit af gögnunum ykkar. Myndirnar eru gögn sem eru töpuð að eilífu ef að tölvan skemmist , er solið eða að þið fáið einhvern svona voðalega skemmtilegan vírus sem eiðileggur allt.
MUNA.... TAKA AFRIT AF GÖGNUM YKKAR, FÁIÐ YKKUR UTANÁLIGGJANDI HARÐAN DISK OG TAKIÐ AFRIT.
Ísbjörn eða skógarbjörn, hver er munurinn ? Hér er myndskeið sem svíi tók í vikuni.
Og föstudagurinn þrettándi á morgun, hversu óheppinn getur maður verið var yfirskrift þessarar fréttar.
Svo að lokum skrifar Dr. Gunni "Að móðgast fyrir hönd annarra"
Sunnudagur, 6. apríl 2008
Myndavél
Var að sprufa að setja upp vefmyndavél, bara smá prufa, veit ekki hvort að ég láti hana vera í einhvern tíma, það kemur í ljós.
Slóðin á myndavélna er hér http://www.ingthor.com/vefmyndavel/index.html
Það sem ég skrifaði ekki.
Bloggarar
Tenglar
Umsjón vefkerfis
Hafa samband
Ingthor Sigurdarson
Løbergsveien 105
5073 bergen
Norge
mobil: +47 97516441
heima: +47 55590327
Ísland: +354 6632214
ingthorsig@gmail.com
MSN : ingthorsig@hotmail.com
Skype : boribolla
Myndirnar mínar
Heimsóknir
© Copyright 2006, nerdwg.org design by Luka Cvrk, port for s9y by nerdwg.org



