Laugardagur, 24. júlí 2010
Fasteign á hjólum
létum vaða á nýjan bíl á föstudaginn, eða notaðan nýjan, allavega nýrri en Golfinn. Ég prufaði 2 bíla, annarsvegar Golf steisjón og Volvo V50 steisjón, eftir að hafa prufukeyrt og skoðað alla möguleika enduðum við á eldir bílnum sem var jafnframt meira keyrður, Volvo V50. Ástæðan fyrir því að við völdum volvo var að hann er fallegri, betir litur svartur en Golfinn var grár, minni hávaði í vélinni, aksturstölva, tímastillt olíumiðstöð, 2 dekkjagangar, krókur, og svo eru þetta svo agalega öruggir bílar.
Þegar að ég var á bílasölunni að ákveða hvað við ættum að gera fékk ég skilaboð frá Birki , hann átti aukka miða á MUSE tónleikana og ákað af sjálfsögðu að skella mér, fann annan ódýran miða og keypti hana Ollu, kipptum með okkur einum Íslending og skemmtum okkur vel, flottir tónleikar, hefði kanski viljað hafa betra sánd en ég kem sáttur frá þessum tónleikum.
Í dag eigum við 2 bíla, fengum hrirkalega léleg tilboð í uppítöku svo að við ætlum að selja Golfinn á allmennum markaði og freista þess að fá eitthvað meira en uppítökuverð.
Í dag fór ég svo í smá ljósmyndatúr, ætlaði að prufa nýju filterana mína en það var eiginlega of bjart í það og ég náið ekki að nota þá eins og ég var búinn að vonast til, en í staðinn rakst ég á verksmiðju sem er búið að leggja niður og stendur auð, ég fór innog skoðaði allt tók myndir og fýlaði mig í tætlur, mér leist svo ekki á blikuna þegar að ég var kominn upp á 3 hæð, en mig grunar að það búi einhverjir útigangs emnn í húsinu svo að ég þorði ekki að fara lengra, rakst á einn strák inni sem var að spreija eitthvaðlistaverká vegg en húsið er allt út krotað að innan. Ég á eftir að fara þarna aftur og betur búinn, með ljós flass og einhvern með mér.
![]() |
| Yfirgefin verksmiðja |
Ég rölti í bæinn í dag, það er orðið svoldið langt síðan ég tók bæjarrölt, stefnan var tekin á Lille Kaffekompaniet, ég fékk mér það sama og venjulega tvöfaldan latte og taka hann með, verðið hefur hækkað enn einusinni bölvaði ég inni með mér þegar að ég rétti afgreiðslustúlkunni 45 krónur, en um leið og ég tók fyrsta sopann rann af mér reiðin og ég tók gleði mína á ný. Ég segi það enn og aftur að þetta er Bergens besta kaffi.
Miðvikudagur, 24. febrúar 2010
Snjór í Bergen
Sunnudagur, 31. janúar 2010
Matarboð fyrir lítið !
það fór lítið fyrir matarboðinu hjá mér í gær, vinnufélagarnir afboðuðu korter fyrir matarboð, sögðu að dagurinn hefði verið svo erfiður. Ég gaf skít í þá og bauð Pétir í kjúllabringur að hætti meistarans, áttum fínt kvöld og horfðum á karata kid sem var mikil skemmtun.
í dag skellti ég mér svo í göngu út í langeskog, 2 tímar í ný föllnum snjó og blíðskapar veðri.
![]() |
| langeskogen |
Hérna er svo fréttaritarinn á Rás2.
Til hamingju Ísland með Bronsið, frábær árangur.
Laugardagur, 2. janúar 2010
Ný eða gamlárskveðja
þetta átti víst að fara inn á netið eftir að ég fór í þessa göngu, ég var einfaldlega of lúinn til að setja þetta inn samdægurs.
Ég gekk sem sagt á Løvstakken á gamlársdag í hrikalega fallegu veðri. Ég var einn og ekki mikið af fólki á ferðinni, sólin ný komin upp og útsýnið frábært.
![]() |
| Løvstakken 31 des 2009 |
Laugardagur, 12. september 2009
Gamlar myndir frá Íslandi
Get ekki annað en skellt þessu á bloggið mitt, þetta eru frábærar myndir frá Íslandi, sú fyrri frá 1950 og sú síðari frá 1926
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Blogg kreppa
Sunnudagur, 25. janúar 2009
fremur róleg helgi
Tók því rólega um helgina, borðuðun pizzu hjá Stebbu í gær eftir að hafa farið í bæinn og skoðað mannlífið, dagurinn í dag fór svo í tölvustúss, setti upp gamla tölvu fyrir Villa og Örnu og át pönnukökur og flatbrauð með hangiket.
Vinna á morgun og undirbúningu fyrir Afríku, annars er allt að verða komið á hreint með það og ég hlakka hrikalega til.
Myndir frá Bergen. (ekki eftir mig) fannst þetta bara skemmtilegar myndir þannig að mig langaði til að sýna ykkur þær.
Aftur á móti eru þetta myndir sem ég tók á Íslandi um daginn.
![]() |
| ísland 2008 |
Sunnudagur, 12. október 2008
örblogg
Hér er búið að rigna og rigna
Buðum Íslenskum námsmönnum í mat á laugardaginn
Ég er búinn að vera latur í dag
Tók þessar myndir í gær.
Laugardagur, 11. október 2008
Í tilefni dagsins
Laugardagur, 16. ágúst 2008
loksins koma myndir
Ég stel bara tekstanum sem Olla var búin að setja á sitt blogg...
Hér getið þið séð brúðkaupsdaginn okkar í myndum.
Pabbi tók þónokkrar og Anita vinkona mín líka. Hún er alveg óreynd svo sumar myndirnar eru skældar og krumpaðar en mér finnst það nú bara gaman því það eru líka flottar myndir. Hér er ekkert verið að plokka út bara fínustu myndirnar heldur fáið þið að sjá hellings krumpað og klesst og læramyndir og allan pakkann. Við týnum svo til í minna og fínna bryllupsalbum seinna.
Takk pabbi og Anita fyrir að taka svona fínar myndir.
Sunnudagur, 6. júlí 2008
Er að koma Ármanni í formm
Eftir að hafa étið pizzu og skolað henni niður með pepsíx fórum við af stað, stefnan var tekin á hæsta fjallið í Bergen, Ulriken 642 metrar, við lögðum af stað kl 10:45 og gekk ferðin vel. Púlsinn hjá mér fór nokkuð hátt og ég svitnaði og geit, en upp komumst við og tók ferðin ekki nema 45 mínótur, mættum 2 á leiðini upp og 2 sem voru á toppnum þegar að við komum, ég átti von á því að það væri meira af fólki en sú var ekki raunin. Við tókum nokkrar myndir en stoppuðum ekki lengi uppi út af mýflugum, kanski sem betur fer því að þr orðið frekar mikið mirkur á niðurleiðini. Fórum upp og niður á tveimur tímum. (Þórólfar gerið betur)
Í morgun fórum við svo í skvass kl 11 og þar fékk ég sko að svitna, náði samt nokkuð góðum árangir og sigraði Árm einusinni (segi ekki frá því hvað oft ég tapaði). Svo kláruðum við að mála húsgrunnin og lögðumst svo út í sólina og drukkum kaffi og borðuðum vínarbrauð.
![]() |
| Ulriken 05.07.2008 |
![]() |
| úti að grilla og snakk át |
Laugardagur, 21. júní 2008
Sumar myndir
Hef verið mjög latur við að setja inn myndir í sumar, hér koma nokkrar frá sumrinu.
Sunnudagur, 18. maí 2008
overeaters anonymous
17 maí var stór fínn, vaknðil 8 og var kominn í fyrsta matarboðið kl 9, eftir rúman tíma fór ég í bæinn, rambaði beint á Ármann og Guðrúnu, skellti mér í Brann göngu, eða TOG eins og það er kallað hérna (skrúðganga) það var upplifun að vera með og fylgjast með fólkinu, allir í fínu fötunum og veðrið gott. Í bergen var besta veðrið í Noregi, t.d. voru 2° í Oslo og á sumum stöðum snjóaði, hér var sól og blíða. Eftir skrúðgönguna var okkur boðið í brann mat ( engan aula húmor um brunnin mat) maturinn var sem sagt í boði fótbolta félagsins Brann, en Armann bauð okkur á þetta svakalega hlaðborð, Sparifötin vöru þröng fyrir en eftir að hafa borðað var ég að springa og ég leit út eins og rúllupylsa. íslenski búningurinn vel strektur utan á mér. Eftir Brann matinn fórum við til Eygló, hún var með römmegraut (norskur grautur) þar var komið slatti af fólki og stoppuðum við í 2-3 tíma.
Eftir allt þetta át fór ég heim, dró inn magann og hneppti frá mér fötunum, mikill léttir. Stuttu síðar hringdi Árann og ákváðum við að prufa nýju fínu veiðstangirnar, fórum í veiðiferð sem gekk ekki vel (1 fiskur) (mjög lítill)(slepptum honum) (hann drapst).
Eftir lélegan veiðitúr vorum við farnir að finna fyrir hungri og keyptum okkur kebab, tókum það með heim til Ármans og Guðrúnar. Það voru misstök, föttuðum ekki að kaupa handa henni og vorum ekki í náðinni. Sorrí Guðrún, ég skal bæta þér þetta upp.
![]() |
| 17 maí 2008 Bergen |
Það sem ég skrifaði ekki.
Bloggarar
Tenglar
Umsjón vefkerfis
Hafa samband
Ingthor Sigurdarson
Løbergsveien 105
5073 bergen
Norge
mobil: +47 97516441
heima: +47 55590327
Ísland: +354 6632214
ingthorsig@gmail.com
MSN : ingthorsig@hotmail.com
Skype : boribolla
Myndirnar mínar
Heimsóknir
© Copyright 2006, nerdwg.org design by Luka Cvrk, port for s9y by nerdwg.org












