Miðvikudagur, 30. desember 2009
Velkomin til Afríku beibí.
Jamm og jú.
Það er orðið ansi langt síðan ég kom heim frá Afríku, eða um 2 mánuðir og ekkert hef ég nennt að setja inn myndir eða segja frá ferðinni. Í gær manaði ég mig loks upp í að setja saman myndaalbúm og skrifa teksta undir.
Áramót á morgun og jólin búin. Ég vildi að það væri svona mánuður á milli jóla og nýárs því mér finnst gaman að náttfatast og horfa á Dexter. En þetta tekur víst allt enda og á mánudaginn fer ég í skólann aftur og Ingþór í vinnu. En það er nú langt í mánudaginn ennþá. ![]()
Á morgun ætlum við að hafa kalkún og meðlæti í gamlársmatinn. Það koma jafnvel nokkrar fagrar stúlkur og borða með okkur. Svo verður spilað og horft á aðra skjóta upp kökum. Annars er lítið skotið upp hérna vanalega og lítið fútt miðað við á Íslandi. Á nýársdag ætla ég svo að horfa á annála og Skaupið og borða afganga. Ljúfa líf.
Afríkumyndir! Njótið.
Svalbaunin out
![]() |
| Africa Fall 2009 |
Föstudagur, 7. ágúst 2009
Punktar úr lífi Svalbaunar.
Fyrr í sumar var ég að heimsækja hana Andreu vinkonu mína. Hún er fimm ára. Hún var að horfa á atriði í Söngvaborg þar sem ein þjóðþekkt persóna var að leika í einhverju bílaatriði. Það eru nokkur brussulæti í þessari persónu og hún er að göltrast á fullu í atriðinu. Andreu verður litið á mig.. svo á sjónvarpspersónuna og svo aftur á mig... „þú er sko eiginlega alveg eins og hún!“ Ég lít á sjónvarpið og sé hver er það og fer að grenja úr hlátri með tilheyrandi krömpum og skellum. Andrea verður eitthvað kindarleg á svipinn þegar hún sér viðbrögð mín og ætlar að reyna að bæta fyrir þetta... „ en, en... húúún eeeer eiginlega rosalega lík þér!!“... betur gat hún ekki gert greyið til að bæta skaðann því við vorum mjög líkar, ég og Gyða Sól.
Pot.....Þannig er mál með vexti að við nýgiftu hjónin erum stundum að pota í hvort annað... á Facebook þ.e.a.s. Þá stendur hjá mér... „Ingþór potaði í þig“ og ég ýti á takka á móti sem stendur „pota á móti“. Þetta fannst mér svona skemmtilega rómó lítið juð og var mjög ánægð með það... þangað til í Íslandsferðinni. Þá sé ég að Ingþór er inni á fésbókinni að pota í einhvern annan...einhvern karlmann... Mér varð auðvitað brugðið og ber þetta upp á hann og hann játar þetta blákaldur og segir..“ég er samt bara að pota í ykkur tvö“....
SVO AÐ EFTIR 12 ÁRA SAMBAND kemst ég að því að Ingþór er fjölpotari eftir alltsaman.
Svalbaunin out.
Það sem ég skrifaði ekki.
Bloggarar
Tenglar
Umsjón vefkerfis
Hafa samband
Ingthor Sigurdarson
Løbergsveien 105
5073 bergen
Norge
mobil: +47 97516441
heima: +47 55590327
Ísland: +354 6632214
ingthorsig@gmail.com
MSN : ingthorsig@hotmail.com
Skype : boribolla
Myndirnar mínar
Heimsóknir
© Copyright 2006, nerdwg.org design by Luka Cvrk, port for s9y by nerdwg.org


