Fimmtudagur, 1. júlí 2010
Ég meina það, 14 ára með tiggjó
Ég var að koma heim úr kaupfélaginu með fullt af nýjum vörum frá sambandinu, en á meða ég geng frá innkaupunum hlusta ég á Rás2, þar var einhver stelpa að tjá sig um vexti og alþingis mál, ég veitt því athyggli því að hún virtist ekki hafa vit á því sem hún var að tala um né var talandi, hú hljómaði eins og 14 ára skólastelpa með 2 hubba bubba tiggjó uppi í sér. Eftir stutta stund kemst ég að því hver þessi litla skólastelpa er.... Birgitta Jónsdóttir.
Hrafnhildur er að koma í heimsókn á eftir, ég ákvað að skreppa í kaupfélagið og fylla á ísskápinn og minka tómahljóðið í skápunum, held að mér hafi tekist ágætlega til því að ég náði að spandera 1300 krónum og verslaði nokkuð sparlega. (fyrir utan negrakossana).
Ég er að fara til Kristiansund á þriðjudaginn, verð þar í 2-4 daga, vikuna á eftir á ég að fara til Englands og vera í 3 vikur, sjáum til hvernig það fer, ég trúi því þegar að ég verð lentur í Englandi.
Það er spáð skýjuðu á morgun en 23 stiga hita, ég ætla að hætta snemma ef að það rætist, tek kanski skurk í garðinum og horfi svo á Holland slá Braselíu út.
Þriðjudagur, 29. júní 2010
Ég er með lamaðann þumal putta
Um daginn þegar að við Olla keyrðum til Kongsberg settum við hljóðbók í græjurnar, það sem var svo magnað við þetta var að ég þurfti ekki að hlusta á ruglið og rausið í Ollu alla leiðina... Nei nei við hlustuðum alla leiðina og tíminn flaug áfram, hrikalega skemmtilegt. ég er búinna ð hlusta á nokkrar hljóð bækur þegar að ég keyri úr og í vinnu.
Um helgina var tekið á því. Olla var í skólanum og ég ætlaði að taka til í garðinum, það fór eitthvað lítið fyrir því á laugardaginn þar sem það ringdi, í staðinn skaust ég út og skar niður nokkra rabbabara og bjó til sultu, í leiðinni hnoðaði ég í nokkur rúgbrð og henti í ofninn, frá því er helst að segja að sultan er mjög góð og þrumarinn alveg svakalegur. Það er ég er að grenslast fyrir núna er hvort að það geti ekki einhver rykt fyrir mig kjöt þá er ég í góðum málum.
Á sunnudaginn var sól og blíða, ég ætlaði að setja upp lítinn girðingar stubb því að gamla girðingin var horfinn út af tyði og búið að traðka hana niður, þegar að ég var kominn að þeim stað sem gamla griðingin var í lagi sá ég að það yrði ekki fallegt að skeita saman girðingarnar og hófst handa við að klippa niður runna og saga niður tré. 7 tímum seinna var garðurinn orðinn 5 fermetrum stærri og ný girðing komin upp. Allir íbúar hússin í skýjunum hvað vel tókst til og ég auðvita hrikalega montinn.
Stebba kom í heimsókn með Sævar Zakarías og Þóru og var slegið upp vöflu veislu, rabbabara sultan var vinsæl (sérstaklega hjá mér) og eftir stutt át hófst ég handa viða að girða.
Í gær þegar að ég vaknaði til að fara í vinnuna var ég ónýtur í vinstri þumalputtanum, ásæðan er sennilega eitthvað sem ég hef gert í garðinum.
Ég mætti í stuttbuxum í vinnuna í gær, enda sól og blíða. Þegar að ég kem í vinnuna fer ég úr stuttbuxunum og í vinnugallan, það byrjaði að rigna um leið með þrumum og eldingum. það ringdi allan daginn, þegar að e´g skipti aftur um föt og fer í stuttbuxurnar eftir vinnudaginn hættir að rigna og ég keyri heim í sól og blíðu.
Laugardagur, 26. júní 2010
sulta og brauð
Ég ákvað að sofa út í morgun, hef ekki gert það lengi enda ástæða fyrir því, ég fæ alltaf hausverk ef ég sef lengi. Ég vaknaði fyrir kl 7 og náði að sofna aftur, vaknaði svo kl 10 og kom mér á fætur, að vakna kl 10 buað hausverknum heim, ég er búinn að vera með hausverk í dag og er rétt að lagast núna.
En ég hef ekki verið aðgerða laus í dag, ég skrapp í IKEA og ætlaði að kaupa nýjann CD skáp þar sem okkar er löngu orðinn yfirfullur, það var hætt að selja týpuna sem við erum með og verð ég að leita annara leiða til að finna svoleiðis skáp, enda sennilega með að fara í fretex (hjálpræðis herinn) og sjá hvort að það sé til svona skápur hjá þeim.
Svo tók ég stórann hníf með mér út í garð og skar niður nokkra rabbabara, sauð sultu sem er komin inn í ísskáp og bragðst einstaklega vel, hanski að maður hendi í vöflur á morgun. En þetta var ekki það eina sem ég gerði í eldhúsinu, heldur skellti ég í rúgbrauð, fann uppskrift á netinu og með aðstoð frá hinum og þessum náði ég að hnoða þessu saman og nú er þetta í ofninum og verður tilbúið um kl 1 í nótt, ætli ég slökkvi bara ekki á ofninum þegar að ég fari að sofa og leifi þessu að kólna hægt og rólega í ofninum í nótt.
Á morgun ætla ég að flytja inn í geymsluna, setja upp eina girðingu og jafnvel að bora gat á húsið, en við ætlum að setja vatnskrana út til að auðvelda okkur garðstörfin. Svo ætla ég að háþrýsti þvo svalirnar.
Miðvikudagur, 23. júní 2010
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld

Á 17 júní keyrðum við Olla til Kongsberg og kelltum okkur í 40 ára afmæli hjá Heimi, það þarf ekki að spyrja hvernig móttökurnar voru, allavega varð ég ekki var við garnagaul þann tíma sem ég var hjá Siggu og Heimi. Frábær afmælisveisla með frábæru fólki. þar sem fjöldi fólks kom í afmælið tókum við með okkur tjald og tjölduðum í garðinum, alltaf voða gott að sofa í tjaldi (nema þegar að það rignir). Sumarið lét aftur á móti eitthvað standa á sér og kom ekki fyrr en á sunnudaginn þegar að við vorum sest inn í bíl og lögðum af stað heim. Þórunn frænka var ekki heima svo að við gátum ekki heilsað upp á Geilo fjölskylduna.
Annars er búið að vera rólegt hjá okkur í vinnuni, sem er bara allt í lagi eftir 5 mánaða törn, frétti það í gær að ég ætti að fara til Englands um helgina og vera í 3 vikur, ég gerði viðeigandi ráðstafanir og boðaði komu mína, flugmiði var pantaður og ég tilbúinn að fara, í morgun 20 tímum seinna var hætt við að senda mig til Englands, meira ruglið á þessu fyrirtæki sem ég vinn hjá.
Í gærkvöld var nýji pallurinn svo vígður með svaka grill veislu, við grilluðum BBQ ribbs og smá lax í pestó, Olla bakaði focaccia með olífum og sólþurkuðum tómötum annarsvegar og annað með maldon salti og fetaosti, nammi namm. Við sátum til kl 23 og borðuðum og spjölluðum, fengum rabbabara pie í dessa sem var svaka gott.
Svo er ég búinn að vera að taka eina geimsluna í gegn, búinn að mála allt hátt og látt, þetta átti að vera mjög ódýr vinna hjá mér, ég átti smá málingu sem ég hélt að myndi duga en annað kom á daginn og ég þurfti að kaupa 4 lítra af málingu til að klára veggi og loft, samt þyrfti að mála eina umferð í viðbót til að hafa þetta mjög fínt en þar sem ég ætlaði að hafa þetta ódýrt sleppti ég því. Svo var komið að gólfinu, ég fékk epoxí málingu úr vinnuni og ætlaði að nota það á gólfið, sem betur fer prófaði ég að blanda og mála lítinn blett, málingin þornaði ekki og ég blandaði 4 mismunandi blöndur og ekkert af þeim virkaði, ég játaði mig sigraðan og fór út í búð og keypti 1 líter af epoxí gólfmálingu, ég náði ekki að mála eina umferð yfir gólfið. Nú var þetta hætt að vera sniðugt þar sem einn líter kostar 250 kr eða 5000 isl kr. ég gat ekki annað en keypt einn líter í viðbót til að klára, en þá var ég kominn upp í sömu upphæð og fjögra lítra fata kostar, ég blótaði sjálfum mér í sand og ösku fyrior að vera svona vitlaus. allavega kláraði ég að mála gólfið í gær og nú er það í stíl við veggina, flekkótt og ljótt. En þetta er mikið betra en það var áður og um helgina ætla ég að flytja draslið aftur inn, ætla að ráðast á hina kjallarageimsluna og henda drasli, þetta safnast endalaust inn í geimslurnar hjá manni. Ég er heppinn (eða óheppinn) að hafa 3 geimslur.
Miðvikudagur, 16. júní 2010
nu er det helg.
Já þið heyrður rétt, ég er kominn í helgarfrí, við ætlum að skella okkur yfir til Kongsberg í afmæli og gæða okkur á pizzu snúðum.
Ég var búinn að skrifa ágætis blogg færslu í morgun, svo náði ég að henda henni án þess að setja hana á netið, klaufi ég...
Í hádeginu í gær var verið að ræða ferðalög. hvað það sé gaman að prufa eitthvað nýtt og borða allskonar mat. Ekki voru allir á sama máli, einn tók alltaf með sér friele kaffi, ég átti ekki til orð, þetta er ódýrt og frekar vonta kaffi. aðrir borðuðu á sama veitingastaðnum 12 daga í röð, einhverjir gráfu upp norskan stað og fengu sér raspeballer.
Í gær skellti ég mér á tónleika með Rammstein, svakaleg sjóv í alla staði, upphitunar böndin voru ekki eins spennandi. Ég ætla ekker að koma með neinar sérstakar lýsingar á þessum tónleikum, þeir voru bara magnaðir.
Í gær fór ég snemma heim úr vinnuni, kom við hjá félögunum í Möller og keypti mér nýjan súrefnisskinjara og skipti um hann á met tíma, held að þetta hafi verið norðurlanda met í að skipta um húrefnisskinjara utanhús.
Í fyrramálið á ég svo pantaðann tíma fyrir bifreiðaskoðun, fer með ann til Möller og læt Truls taka skoðunina, þá veit ég að þetta tekur stuttan tíma og ekkert rugl.
Ég er ekki enn búinn að klára að mála geymsluna, epoxy lakkið sem ég ætlaði að setja á gólfið er bara ekki að virka, það þornar ekki. Verð að koma við Coop Bygg og kaupa gólfmálningu.
Hef fylgst með HM með öðru, var að klára Spán - Sviss. Ég er sáttur við úrslitin. Ég ætla að styðja Þjóðverja, held að þeir eigi eftir að taka þetta.
Sunnudagur, 13. júní 2010
Ég setti mér markmið !
Að vísu voru þetta bara nokkrir punktar sem ég ætlaði að gera um helgina.
Nr 1. var að skipta um olíu á bílnum, og það kláraði ég á met tíma, keypti olíusíu á föstudeginum og fór svo á verkstæði sem maður getur gert við sjálfur og reddaði málunum. Um leið og ég keypti olíusíuna pantaði í súrefnisskinjara í pústið hjá mér sem er búinn að vera bilaður í 6 mánuði.
Nr 2. Nafnapartí, eða "nafna uppljóstrunarathøfn" eins og foreldrarnir kölluðu það. Þetta var hjá Birki og Stebbu litli stóri strákurinn þeirra fékk nafnið Sævar Zakarías í höfuðið á öfum sínum, takk fyrir veisluna Sæbbi Zakk.
Nr 3. Kom strax á eftir nr 2. og var það grillveisla, hvað er betra en að skella sér í grillveislu til að ýta niður kökunum sem vaður var að háma í sig í nafna uppljóstrunarathøfn. Grillið var hjá Villa og Örnu, svakalegt grill maður minn, rækjur, svín, lamb, kjúlli grænmeti sósa djöst neim it maður.... Svakaleg veisla.
Nú er ég búinn að klára alla þessa punkat og byrjaður á þeim fjórða sem var ekki inni í planinu. En það er að mála eina geymsluna hjá okkur, þessi geymsla var sennilega notur fyrir kol og koks í gamladaga og var frekar svört og skítug, ég hef notað hana fyrir við (í arininn), nú hef ég hugsað mér að setja upp lítið borð eða bekk svo að ég geti dundað mér með allskonar smáverk sem ekki eiga heima inni í íbúðinni þarna niðri í bjartir og ný málaðri geymslunni. Viðurinn fær að sjálfsögðu vera þarna líka.
Þegar að þessu er lokið ætla ég að ráðast á hina geymsluna í kjallaranum og hreinsa aðeins út, það vill svo einkinnilega til að svona geymslur soga að sér allskonar dót sem er ekkert vit í í halda uppá, ekki ósvipað og fataskápar, minn fataskápur minkar fötinn og ollu fataskápar margfalda fötin.
Já og eitt enn. það var keyrt í hliðina á bílnum okkar í síðustu viku, enginn slasaður og golfinn aðeins lemstraður, volvo fluttningabílinn slapp með minniháttar sjokk.
Miðvikudagur, 9. júní 2010
Frekar rólegur
Svo sem ekki mikið að skrifa um í dag, lífið gengur sinn vanagang, ég var í vinnu alla helgina en náði samt sem áður að slá garðinn og losa okkur við trjágreinar og rusl.
Sumarið virðist eitthvað ætla að láta bíða eftir sér, fínn hiti á daginn þegar að sólin skín en þegar að sólin sest er kalt og þá þarf maður að fara í síðbuxur.
Í gær skelltum við Olla okkur út að borða með Pétri og Magna, fórum á Lille Escalón. Alltaf góður matur þar, tapas með öllu tilheyrandi.
Þetta fær mig til að hlæja. Steindinn okkar.
Laugardagur, 5. júní 2010
mig svíður í löppina
Vikan hefur verið óskup vengjuleg, ekkert sérstakt nema að ég fékk sendann skoðunnar miða á bílinn minn, þrátt fyrir að vera ekki búinn að fara með hann í skoðun, ætli ég skelli mér ekki í skoðun fljótlega.
Ég skrapp aðeins í vinnuna í dag, aðallega til að flíta fyrir komandi viku þar sem það leit út fyrir að við næðum ekki að klára verkefni sem við eigum aðskila á föstudaginn. Þetta varð til þess að e´g ætla að mæta aftur á morgun og jafnvel klára verkefni næstkomandi viku.
Eftir að ég kom heim í dag skellti ég upp stögum á skjólvegginn á apllinum, til að komast að staðsetningunni þurfti ég að fara bak við vegginn, af sjálfsögðu var ég í stuttbuxum enda hitinn eitthvað a bilinu 15-20°. það vildi ekki betur til en svo að ég böðlaðist í gegnum runna fullan af brenninetlum og nú svíður mig afskaplega mikið í aðra löppina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi sami runni verður á vegi mínum því í fyrra var ég að reita íllgresi, ég var með hanska á mér og taldi mig vera fær í hvað sem er, greip um stilkinn á einni netlunni og ætlaði aldeilis að slíta helvítið upp með rótum, það eina sem gerðist var að gaddarnir á blómin fóru í gegnum hanskann og ég var aumur í hendinni í 3 daga á eftir.

Miðvikudagur, 2. júní 2010
Skellti mér á tónleika
þegar að ég var fastur úti á olíuborpalli um daginn hringdi ég í Ollu og fékk þær fréttir að hún hefði keypt miða á tónleika handa okkur. Hvað tónleika spurði ég og svarið sem ég fékk var Guns N´Roses, ekki beint mitt uppáhald en ég hugsaði með mér að þetta gæti nú verið góð skemmtun og lét slag standa. það versta var kanski að ég var búinn að segja við fyrrverandi vinnufélaga mína að það væri það síðast sem ég myndi gera að fara á tónleika með Guns N´Roses, ég var búinn að fá gjörsamlega upp í kok því að þeir spiluðu þetta endalaust á verkstæðinu.
Á mánudags kvöld kom svo að tónleikunum, húsið opnaði kl 19:00 og tónleikarnir áttu að byrja kl 20:00, ég er óvenju rólegur og við leggjum ekki af stað fyrr en 20 min í átta, komum inn í höllina rúmlega 8 og þá var upphitunar bandið byrjað að spila, ég hafði ekki hugmynd um hverjir áttu að hita upp en heyrði það um leið og ég kom að þetta var Danko Jones, ég hef hlustað svoldið á þá en þarna var sándið ömurlegt og frekar léleg spilamennska. Danko Jones spiluðu í einn og hálfan tíma og var það alveg nó, svo var byrjað að snúa öllu við á sviðinu og við biðum eftir Guns n roses. biðin var löng og ströng og byrjuðu tónleikarnir ekki fyrr en rúmlega 11. Eitthvað af fólki var farið heim áður en tónleikarnir byrjuðu. Ég lét mig hafa það og byrjaði nú ballið, prógrammið var nokkuð gott, aðalega gamlir slagarar og einstaka nýtt lag inn á milli. Axl Rose er eini orginal meðlimurinn og var hann með klón af Slash með sér, frekar hallærislegt að hafa einhverja eftirlíkingu, með hatt, krullur og reykjandi.
Í stuttu máli þá voru tónleikarnir lélegir, sándið ömurlegt og Axl Rose var ekki með úthald nema í 1 tíma en eftir þann tíma komu bara hálfar setningar og bjöguð hljóðmerki frá honum.
Í næstu viku er ég svo að fara á aðra tónleika en það eru Rammstein - Alice In Chains og Hatebreed, fyrstu útitónleikar sumarsins, ég hlakka sérstaklega til að sjá Rammstein og sjóið hjá þeim.
Sunnudagur, 30. maí 2010
Pallurinn klár.
Föstudagur, 28. maí 2010
Það standa yfir framkvæmdir.
Þessa dagana leggjum við loka hönd á sólpallinn okkar, pallurinn sjálfur kláraðis í fyrra en núna erum við að byggja skjólveggi, það klárast vonandi um helgina.
Það verður ekki leiðinlegt að liggja þarna og sleikja sólina, fíra upp í grillinu eða bara að sýna sig svo að nágrannarnir geti öfundast út í okkur því að við höfum fallegasta og besta sólpallin í hverfinu.
Af mér svo sem ekki mikið að frétta, ég bræddi úr hárklippunum mínum um daginn í miðjum rakstri, hausinn á mér var ekki mjög vel klipptur, þarf að fjárfesta í nýjum klippum. Vorum að skila af okkur stóru verki, vonandi verður það rólegt í næstu viku að ég geti skipt um dekk á bílnum og þrifið að innan og utan.
Í kvöld langar mig svo að fara á tónleika með Samma og stórstveit, en þeir eru að spila á Natt Jazz í Bergen. Vantar bara einhver til að dröslast með mér, best að hringja í Jónas og plata hann á tónleika.
Úti er sól en sumarið er ekki komið, á liðinni heim í fyrradag kom haglél, fínt á daginn en skítkalt þegar að sólin sest.
Var boðið út að borða í hádeginu, í staðinn fyrir ða kauapa brauð og álegg fórum við í kantínuna í boði fyrirtækisins, á boðstólnum voru hamborgarar sem voru sennilega búnir til úr afgöngum af afgöngum, þeir voru ekkert sérstaklega góðir.
Fer sennilega fyrr heim úr vinnuni í dag eins og 2 síðustu daga, en ég er að losa mig við útlendinga sem eru búnir að vera hjá okkur í vinnuni, ég er að tína einn og einn út á flugvöll.
Í fyrradag fór ég og gaf blóð í fyrsta skipti hérna í Bergen, verð að segja að það er virkilega vel af þessu staðið og allt til fyrirmyndar. Fékk bréf í póstinum þar sem mér var sagt að mæta með dagsetningu og kl. hvað, ef þetta hentar þér ekki þá sendir maður bara mail ( sem maður fær um leið og bréfið birtist) og þar lætur maður vita ef að tíminn hentar ekki, en ég þurfti að fresta því að mæta í nokkur skipt út af gosinu á Íslandi, annaðhvoer var ég á leiðinni til Íslands eða fastur á Íslandi. Á þessum miða sem maður fær frá blóðbankanum er miði fyrir bílastæði sem eru að skornum skammti og ekki ókeypis á Haukeland sjúkrahúsinu. Allt er dekkað fyrir mann og svo er tappað af manni slatta og í þetta skiptið fengu norðmennirnir eðal blóð frá heilbrigðum Íslenskum víkingi.
Fimmtudagur, 20. maí 2010
Ég var svo svangur...
Eftir að hafa borðað upp leifar frá kvöldinu áður, sem var grillað svín og grillaður lax var ég svo svangur að ég skellti í mig 4 pulsum.
Gekk saddur til náða.
Vinna og vinna 11 tímar á þriðjudaginn, 11 tímar í gær, 10 tíamr í dag og svo er verið að biðja mig um að vinna um helgina....
Hér er sól og allt orðið grænt, hitinn farinn að nálgast þriggja stafa tölu....
Skil ekki af hverju ég er ekki með sléttan maga.

Mánudagur, 17. maí 2010
Pixies
17 maí þjóðhátíðardagur norðmanna
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer ekki í bæinn að fagna þjóðhátíðardeginum, vanalega er svo troðoið í bænum að maður kemst hvorki lönd né strönd en það er mjög gaman að sjá fólkið og hvað norðmenn eru duglegir við að klæða sig í þjóðhátíðarbúninginn sinn.
Olla kom til Noregs í gær, það gekk svo sem ekki þrautarlaust fyrir sig, þegar að hún mætti á fæugvöllinn var henni sagt að hún ætti ekkert að fara með þessari vél heldur ætti hún pantað flug með vélinni á þriðjudaginn og engin leið að komast með þessu flugu, það fó svo að einhver forfallaðist og hún komst með, þá þurfti að græja flugið frá oslo til bergen, ég hringdi og því var breitt, þegar að Olla kom til Oslo var hún ekki á lista yfir farþega til bergen, því var svo kippt í liðinn og hún komst með til Bergen, en það var allt og sumt, farangurinn komst ekki til skila og nú er hann einhverstaðar að veltast um í kerfinu, samkvæmt öllu á hanna að skila sé á eftir.
Ég lagði út nokkrar myndir frá ösku túrnum unm daginn, á eftir að setja nokkrar í viðbót.
![]() |
| undir Eyjafjöllum 09 maí 2010 |
Föstudagur, 14. maí 2010
Föstudagur og ég í fríi.
Mætti í vinnu á miðvikudaginn, frí í gær út af einhverjum jesú degi og svo ákvað vinnan aðgefa frí í dag, á mánudaginn er svo þjóðhátíðardagur norðmanna og þá er af sjálfsögðu líka frí. Sem sagt 5 daga frí og ég er hreinlega að drepast úr leti, enni ekki að taka til eða neitt, enni ekki í bæinn og ekki í gönguferð.
Fór samt í búð áðan eftir að hafa svelt í 3 daga, keypti steik handa mér og pésa á grillið, og eitthvað nýtt í salatið þar sem ég fékk kritik fyrir að vera staðnaður í salta innkaupum. í gær skellti ég mér á leik, fór með Stebbu inn í Arna og með herkjum og nokkrum auka hringjum tókst okkur að finna fótboltavöllinn sem var innilokaður í litlum dal sem var inni í íbúðarhverfi. leikurinn fór 0-2 fyrir Brann sem var að keppa við Arna Björnar.
Ég tók út slátturvélina í gær, rölti og náði í bensín og sló garðinn, hreinsaði og klippti nokkur tré og klippti niður rifsberjatréði sem var sagað niður í vor út að nýju girðingunni sem var verið að setja upp hjá okkur, ég er að vonast til að fá rætur á þessa sprota og hver veit nema að maður fái eitthvað líf í þetta og getur útbúið rifsberja sultu á næsta ári.
Ég var að hlusta á útvarpið áðan, þar var verið aðsegja frá ný útgefnu efni með Rolling Stones, en þetta var tekið upp árið 1971 og 72, eftir því sem ég best heyrði var söngurinn tekinn upp í fyrra og nú var verið að gefa þetta út. Ég hef svo sem ekki verið neinn sérstakur aðdáandi Rolling Stones en þetta lag sem var spilað í útvarpinu fanst mér alveg magnað, ég skellti mér inn á heimasíðu þeirra félaga og fétt link á lagið sem heitir,
Plundered My Soul.
Það sem ég skrifaði ekki.
Bloggarar
Tenglar
Umsjón vefkerfis
Hafa samband
Ingthor Sigurdarson
Løbergsveien 105
5073 bergen
Norge
mobil: +47 97516441
heima: +47 55590327
Ísland: +354 6632214
ingthorsig@gmail.com
MSN : ingthorsig@hotmail.com
Skype : boribolla
Myndirnar mínar
Heimsóknir
© Copyright 2006, nerdwg.org design by Luka Cvrk, port for s9y by nerdwg.org


