Skellti mér á leik í dag, hef ekki farið á heimaleik síðan fyrir HM (missti af eina heimaleiknum sem var í millitíðnni). Brann var að spila við Stabæk og hefði leikurinn fweta farið á báða vegu en endað 2-2 fyrir Brann. Ekkert sérstakur leikur nema að Ólafur Örn var að spila sinn síðasta leik fyrir Brann og getur hann verið stoltur af sínum ferli hjá Brann, Hann spilaði 213 leiki fyrir Brann og hefur verið mjög stabíll (allavega síðan að ég flutti hingað) og er það ekki fyrr en þetta tímabil að hann er farinn að láta á sjá sökum aldurs. Hér er viðtal sem Brann TV tók við hann eftir leikinn í kvöld.
Veigar Páll spilaði með Stæbek og var ekki vinsælasti maðurinn á vellinum fékk gult og var ekki lang frá því að fá rautt með því að djöflast í dómaranum, hann náði aftur á móti að pota inn einu marki sem ætti að skrifa á markvörð Brann þar sem markvörðurinn sýndi afbragðs lérlega markvörslu.
Ég bíð enn eftir sumrinu, les reglulega um hitann í Reykjavík og malbikið bráðnar í póllandi, rússar eru að grillast hægt og rólega en við hérna í Bergen göngum í flís peisum með rent upp í háls, las það áðan að það gæti hlínað í ágúst (er þá ekki sumarið að fara að enda). Ég vona allavega að ég fá nokkra daga í haust þar sem ég get farið úr að ofan og jafnvel skellt mér í sjóinn.
Ég hef nákvæmlega ekkert að segja ykkur, fótbolti og garðvinna er ekki beint skemmtilegasta bloggið, vinnuna nenni ég ekki að skrifa um, nema að það eru allir að fara í sumarfrí ámorgun, ég og einn varðum í vinnuni og þurfum að klára eitt verkefni sem við gerum sennilega á 2 dögum.
þegar að því er lokið ætla ég að fara og versla nýjan bíl. Held að Golfinn sé kominn á tíma (fyrir sirka 100.000 km síðan) og best að skipta honum út áður en hann hrinur. þar sem ég þarf að keyra yfir 15.000 km á ári til að komast úr og í vinnu þarf þetta að gerast fyrr heldur en seinna.
Við erum búin að vera að velta þessu talsvert fyrir okkur, erum búin að lækka standartinn talsvert úr AUDI A4s í Skoda Oktavia. fáum bíl á svipuðu verði mikið minna keyrðan og 2-3 árum yngri.