Eftir vinnu á föstudaginn heyrði ég í Jónasi, við ákváðum að skella okkur eitthvað í fjallgöngu á laugardeginum, skruppum í útivistarbúð þar sem stefnan var tekin á eitthvað voða stórt og fínt fjall sem við þurftum að fá kort af, ekki var kortið til þannig að við ákváðum að skella okkur á preikestolen.
Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað Preikestolen er þá er það stóll (silla) sem er 25x25 metrar að stærð og 604 metra yfir sjáfarmáli, þetta er mikill túrista staður og þarf fólk að leggja á sig talsverða göngu til að komast þangað, en það er svo sannarlega þess virði, í fyrra komu um 130.000 manns yfir sumar mánuðina. Preikestolen er við Lysefjorden en inni í botni á þeim firði er annar áhugaverður staður sem ég ætla að skoða við tækifæri, en sennileg þyrfti maður að vera þanra í nokkra daga því að þarna er á mörgu að taka. En það sem ég ætla að kíkja á við tækifæri er Kjeragbolten (sjá video).
En þar sem við vissum að þetta væri talsverður spotti að fara ákváðum við aðkeyra um kvöldið á föstudeginum, kl 10 renndum við út úr bænum 2 ferjur og við vorum komnir til Stavanger um 2 leitið, ætluðum að gista á tjaldstæðinu hjá preikestolen en föttuðum það ekki að við þyrftum að taka eina ferju í viðbót, ekkert tjaldstæði í nágreninu þannig að við tjölduðum úti í kanti við eitthvað bílastæði og sváfum í 5 tíma. Það ringdi um nóttina og skýjað þegar að við komum á fætur, fórum í ferjuna kl 9 um morguninnog vorum lagðir af stað upp milli 10 og 11, við vorum rétt um 2 tíma upp, þarna var allskonar fólk á upp leið, í allavega fatnaði, gallabuxur voru í fleirtölu og flatbotna skór, ég var á mjúkum gönguskóm og hefði alveg getað farið á stóru prömmunum því að ég var orðinn vel þreyttur þegar að við komum niður. Við fengum ekki flott útsýni uppi en ferðin var vel þess virði að fara hana, ég á örugglega eftir að fara aftur. Vefsíða um Lysebotn, gott fyrir þórólfana að kíkja hingað...
vinna í dag og eitt verkefni sem er komið í gang inni á verkstæði, ég er einn og með lærling, hann var rétt búinn að eyðileggja fyrir milljón í dag, ég reddaði málunum.