Jæja þá er ég búinn með mitt verkefni hérna í Kristiansund og á bókað flug eftir nokkra tíma, ligg uppi á hótelherbergi og hef ekkert að gera nema að koma þessari færslu á framfæri.
Ferðin til Englands hefur verið frestað í annaðskiptið, frekar leiðinlegt að vinna við svona óvissu, geta ekki planlagt neitt. En ég valdi mér þessa vinnu og verð bara að þola þetta.
Ég hef ekkert skoðað mig um hérna í kristiasund, nema fyrir utan stutta bátsferð sem ég fór í í gær rétt fyrir leik Spánar og Þýskalands, stutt og fín ferð og nokkrum ljósmyndum smellt af. Miðbærinn er hinumeginn við sundið og ég hafði ekki tíma til að spóka mig í gær. Það er mjög fallegt hérna en Bergen er samt mikið meira sjarmerandi þó svo að staðirnir sér kanski líkir að því leiti að það eru eyjar út um allt og vogskorið landslag.
Það styttis í að Olla klári skólann, nú er unnið dag og nótt við master verkefnið og ætla ég að hjálpa henni að setja upp sýninguna fyrir verkefnið, það væri svo sem alveg eftir því að ég yriði sendur eitthvað að vinna þegar að það kemur að því.
Leikurinn í gær fór ekki eins og var búinn að vonast til, en Spánverjar áttu þetta fyllilega skilið því þeir spiluðu einfaldlega mikið betur en Þjóðverjar, nú er bara að sjá hvort að Spánverjar eða Hollendingar vinni, ég held með Hollandi en ef spánn spilar eins í úrslitunum eins og þeir spiluðu í gær kom þeir tili með að vinna.
Ekkifréttin mín sló ekki í geng eins og ég hafði haldið, ég hló inni í mér þegar að ég skrifaði hana og hélt að ég fengi góð viðbrögð, engin viðbrögð og ekki fleiri ekkifréttir.
Í gær pantaði ég mér lax á hótelinu, hann var ekkert spes, ég laga mikið betri lax, þessi var feitur og og magnið var til skammar, lítið sporðstikki sem var ekki upp í nös á ketti, kartöflurnar voru fínar og dugði það til að metta feita magann minn.