Eins og aðra marga daga í sumar eiddi ég helginni í garðinum, gróf upp smá part af lóðinni og slétti út og sáði grasi, lóðin er orðin stærri en í byrjun sumars því að ég er búinn að grisja talsvert, við hliðina á pallinum er ég búinn að sá grasi þar sem snúrustaurarnir voru áður og bara möl með nokkrum þúfum. Þetta verður stórfínt á næsta ári og hornið við fánastöngina er búið að stinga upp og fjarlægja rætur slétta og sá grasi. Einnig boruðum við Bernhard gat á vegginn í þvottahúsinu og erum búnir að tengja vatn út.
Ég gæri vel trúað því að ég bjóði Hafdísi að vera hjá okkur næsta suma og hún fær að taka blómin og gera smá skurk í þeim efnum, ég er ekki mjög flinkur með blóm.
Á morgun er ég svo að fara til kristiansund, verð í nokkra daga með lítið verkefni, ég er varla að nenna því en hef sennilega gott af því.
Ég vann aðeins í heimasíðunni hann Umma um helgina, hann hefur lagt út fría smáskífu af laginu "EF ÞÚ ÞEKKIR MIG EKKI" sem er hægt að nálgast hérna. www.ummi.is
Ég keypti mér nýjan síma um daginn, hann er ekki kominn en ég bíð spenntur.

Nú spyr ég, hvað á ég nú að gera í garðinum ? Sennilega eru allir hundleiðir að lesa um hvað ég sé að brasa í garðinum en þetta er það sem ég er að gera þann daginn svo að þið fáið engar aðrar fréttir, kanski að ég ætti bara að búa til fréttir, svona "ekki fréttir" sem gætu hljómað einhvernvegin svona:
Ég skellti mér í fallhlífar stökk um helgina, ekki vildi betur til en að flugmaðurinn fékk aðsvif og ég þurfti að taka við stjórnini á flugvélinni, ég gat ekki hjálpað flugmanninum svo að ég spennti á hann fallhlífina og henti honum út yfir sjúkrahúsinu í Bergen, hann var meðvitundarlaus og gat því ekki kippt í spottann til að opna falllhífina og lenti á trampolíni sem hafði verið komið fyrir utan inganginn á Haukeland sjúkrahúsinu, hann skoppaði beint inn á bráðarmóttökuna og þar var honum startað í gang. Ég aftur á móti tók stuttan flugtúr yfir Bergen og lenti á flugvellinum 2 tímum síðar.