Á 17 júní keyrðum við Olla til Kongsberg og kelltum okkur í 40 ára afmæli hjá Heimi, það þarf ekki að spyrja hvernig móttökurnar voru, allavega varð ég ekki var við garnagaul þann tíma sem ég var hjá Siggu og Heimi. Frábær afmælisveisla með frábæru fólki. þar sem fjöldi fólks kom í afmælið tókum við með okkur tjald og tjölduðum í garðinum, alltaf voða gott að sofa í tjaldi (nema þegar að það rignir). Sumarið lét aftur á móti eitthvað standa á sér og kom ekki fyrr en á sunnudaginn þegar að við vorum sest inn í bíl og lögðum af stað heim. Þórunn frænka var ekki heima svo að við gátum ekki heilsað upp á Geilo fjölskylduna.
Annars er búið að vera rólegt hjá okkur í vinnuni, sem er bara allt í lagi eftir 5 mánaða törn, frétti það í gær að ég ætti að fara til Englands um helgina og vera í 3 vikur, ég gerði viðeigandi ráðstafanir og boðaði komu mína, flugmiði var pantaður og ég tilbúinn að fara, í morgun 20 tímum seinna var hætt við að senda mig til Englands, meira ruglið á þessu fyrirtæki sem ég vinn hjá.
Í gærkvöld var nýji pallurinn svo vígður með svaka grill veislu, við grilluðum BBQ ribbs og smá lax í pestó, Olla bakaði focaccia með olífum og sólþurkuðum tómötum annarsvegar og annað með maldon salti og fetaosti, nammi namm. Við sátum til kl 23 og borðuðum og spjölluðum, fengum rabbabara pie í dessa sem var svaka gott.
Svo er ég búinn að vera að taka eina geimsluna í gegn, búinn að mála allt hátt og látt, þetta átti að vera mjög ódýr vinna hjá mér, ég átti smá málingu sem ég hélt að myndi duga en annað kom á daginn og ég þurfti að kaupa 4 lítra af málingu til að klára veggi og loft, samt þyrfti að mála eina umferð í viðbót til að hafa þetta mjög fínt en þar sem ég ætlaði að hafa þetta ódýrt sleppti ég því. Svo var komið að gólfinu, ég fékk epoxí málingu úr vinnuni og ætlaði að nota það á gólfið, sem betur fer prófaði ég að blanda og mála lítinn blett, málingin þornaði ekki og ég blandaði 4 mismunandi blöndur og ekkert af þeim virkaði, ég játaði mig sigraðan og fór út í búð og keypti 1 líter af epoxí gólfmálingu, ég náði ekki að mála eina umferð yfir gólfið. Nú var þetta hætt að vera sniðugt þar sem einn líter kostar 250 kr eða 5000 isl kr. ég gat ekki annað en keypt einn líter í viðbót til að klára, en þá var ég kominn upp í sömu upphæð og fjögra lítra fata kostar, ég blótaði sjálfum mér í sand og ösku fyrior að vera svona vitlaus. allavega kláraði ég að mála gólfið í gær og nú er það í stíl við veggina, flekkótt og ljótt. En þetta er mikið betra en það var áður og um helgina ætla ég að flytja draslið aftur inn, ætla að ráðast á hina kjallarageimsluna og henda drasli, þetta safnast endalaust inn í geimslurnar hjá manni. Ég er heppinn (eða óheppinn) að hafa 3 geimslur.