Já þið heyrður rétt, ég er kominn í helgarfrí, við ætlum að skella okkur yfir til Kongsberg í afmæli og gæða okkur á pizzu snúðum.
Ég var búinn að skrifa ágætis blogg færslu í morgun, svo náði ég að henda henni án þess að setja hana á netið, klaufi ég...
Í hádeginu í gær var verið að ræða ferðalög. hvað það sé gaman að prufa eitthvað nýtt og borða allskonar mat. Ekki voru allir á sama máli, einn tók alltaf með sér friele kaffi, ég átti ekki til orð, þetta er ódýrt og frekar vonta kaffi. aðrir borðuðu á sama veitingastaðnum 12 daga í röð, einhverjir gráfu upp norskan stað og fengu sér raspeballer.
Í gær skellti ég mér á tónleika með Rammstein, svakaleg sjóv í alla staði, upphitunar böndin voru ekki eins spennandi. Ég ætla ekker að koma með neinar sérstakar lýsingar á þessum tónleikum, þeir voru bara magnaðir.
Í gær fór ég snemma heim úr vinnuni, kom við hjá félögunum í Möller og keypti mér nýjan súrefnisskinjara og skipti um hann á met tíma, held að þetta hafi verið norðurlanda met í að skipta um húrefnisskinjara utanhús.
Í fyrramálið á ég svo pantaðann tíma fyrir bifreiðaskoðun, fer með ann til Möller og læt Truls taka skoðunina, þá veit ég að þetta tekur stuttan tíma og ekkert rugl.
Ég er ekki enn búinn að klára að mála geymsluna, epoxy lakkið sem ég ætlaði að setja á gólfið er bara ekki að virka, það þornar ekki. Verð að koma við Coop Bygg og kaupa gólfmálningu.
Hef fylgst með HM með öðru, var að klára Spán - Sviss. Ég er sáttur við úrslitin. Ég ætla að styðja Þjóðverja, held að þeir eigi eftir að taka þetta.