Að vísu voru þetta bara nokkrir punktar sem ég ætlaði að gera um helgina.
Nr 1. var að skipta um olíu á bílnum, og það kláraði ég á met tíma, keypti olíusíu á föstudeginum og fór svo á verkstæði sem maður getur gert við sjálfur og reddaði málunum. Um leið og ég keypti olíusíuna pantaði í súrefnisskinjara í pústið hjá mér sem er búinn að vera bilaður í 6 mánuði.
Nr 2. Nafnapartí, eða "nafna uppljóstrunarathøfn" eins og foreldrarnir kölluðu það. Þetta var hjá Birki og Stebbu litli stóri strákurinn þeirra fékk nafnið Sævar Zakarías í höfuðið á öfum sínum, takk fyrir veisluna Sæbbi Zakk.
Nr 3. Kom strax á eftir nr 2. og var það grillveisla, hvað er betra en að skella sér í grillveislu til að ýta niður kökunum sem vaður var að háma í sig í nafna uppljóstrunarathøfn. Grillið var hjá Villa og Örnu, svakalegt grill maður minn, rækjur, svín, lamb, kjúlli grænmeti sósa djöst neim it maður.... Svakaleg veisla.
Nú er ég búinn að klára alla þessa punkat og byrjaður á þeim fjórða sem var ekki inni í planinu. En það er að mála eina geymsluna hjá okkur, þessi geymsla var sennilega notur fyrir kol og koks í gamladaga og var frekar svört og skítug, ég hef notað hana fyrir við (í arininn), nú hef ég hugsað mér að setja upp lítið borð eða bekk svo að ég geti dundað mér með allskonar smáverk sem ekki eiga heima inni í íbúðinni þarna niðri í bjartir og ný málaðri geymslunni. Viðurinn fær að sjálfsögðu vera þarna líka.
Þegar að þessu er lokið ætla ég að ráðast á hina geymsluna í kjallaranum og hreinsa aðeins út, það vill svo einkinnilega til að svona geymslur soga að sér allskonar dót sem er ekkert vit í í halda uppá, ekki ósvipað og fataskápar, minn fataskápur minkar fötinn og ollu fataskápar margfalda fötin.
Já og eitt enn. það var keyrt í hliðina á bílnum okkar í síðustu viku, enginn slasaður og golfinn aðeins lemstraður, volvo fluttningabílinn slapp með minniháttar sjokk.