Vikan hefur verið óskup vengjuleg, ekkert sérstakt nema að ég fékk sendann skoðunnar miða á bílinn minn, þrátt fyrir að vera ekki búinn að fara með hann í skoðun, ætli ég skelli mér ekki í skoðun fljótlega.
Ég skrapp aðeins í vinnuna í dag, aðallega til að flíta fyrir komandi viku þar sem það leit út fyrir að við næðum ekki að klára verkefni sem við eigum aðskila á föstudaginn. Þetta varð til þess að e´g ætla að mæta aftur á morgun og jafnvel klára verkefni næstkomandi viku.
Eftir að ég kom heim í dag skellti ég upp stögum á skjólvegginn á apllinum, til að komast að staðsetningunni þurfti ég að fara bak við vegginn, af sjálfsögðu var ég í stuttbuxum enda hitinn eitthvað a bilinu 15-20°. það vildi ekki betur til en svo að ég böðlaðist í gegnum runna fullan af brenninetlum og nú svíður mig afskaplega mikið í aðra löppina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi sami runni verður á vegi mínum því í fyrra var ég að reita íllgresi, ég var með hanska á mér og taldi mig vera fær í hvað sem er, greip um stilkinn á einni netlunni og ætlaði aldeilis að slíta helvítið upp með rótum, það eina sem gerðist var að gaddarnir á blómin fóru í gegnum hanskann og ég var aumur í hendinni í 3 daga á eftir.