Sælan hófst með því að ég vaknaði við að nágrannin sem býr hinumeginn við götuna var að moka bílinn sinn út, hann þurfti auðvita að byrja kl 9 í morgun og tók sér góðan tíma í að dauðhreinsa allan snjó úr stæðinu, skrapaði skóflunni eftir götunni þannig að það söng í. hann hefði svo sem ekki þurft að hafa svona mikið fyrir þessu því að kl 11 byrjaði að snjóa og það er búið að snjóa í allan dag.
Ég fór í matarboð til Frænda á Aköy, fékk pinnekjött sem var ótrúlega gott (já þið lásuð þetta rétt) ég var ekki einn í mat því hann hafði boðið 3 öðrum, ég náði að lækka meðalladurinn niður í 78 ára og hafði ég gaman af. Þarna var vinur hans, en þeir eru búnir að þekkjast í tugi ára og vina hjón þeirra, það fyrsta sem Þórarinn sagði að við yrðum að skrall kartöflurnar sjálf því að hann nennti því ekki, þá sagði vinur hans að hann hefði átt að vera búinn að ráða til sín unga dömu til að gera þetta fyrir hann, hún hefði svo getað sitið við hliðina á honum, hann skyldi passa upp á hana.
Umræðuefnið var allt annað en einhverjar sögur úr fortíðinni, burtu með múslímana og engan vegartoll.
Í gær pantaði ég svo flugmiða til íslands fyrir mig og Ollu, ætlum á Hammond hátíð á Djúpavog í apríl og svo eina viku í Reykjavík.
Ég reikna með mikilli vinnu framundan, verkefni sem þarf að klárast í þessari viku og svo 2 önnur sem þarf að klára sem fyrst. Allt hérna í Bergen, ég er ekki búin að sjá nein plön um það að ég sé að fara í einhver ferðalög á næstunni.
Konudagur á íslandi, til hamingju.
það fór lítið fyrir ljósmyndaferðinn okkar Jónasar í gær, enduðum fyrir framan TV og horfðum á Pixies, það var góð skemmtun.
Ég er farinn að horfa á true Blood.
Hvar er bloggið frá gestabloggaranum sem var búin að lofa að senda mér gestablogg ?