í gær var þorrablót Íslendingafélagsins í Björgvin, ég var af sjálfsögðu á svæðinu (aðal maðurinn) og hjálpaði til að undirbúning, skipulagningu og framkvæmd. Blótið tókst mjög vel og var mjög góð mæting, maturinn var mjög góður og skemmti fólks sér allment mjög vel. Ég var ekki kominn heim fyrr en u 4 leitið í nott og alveg búinn.
í dag ætla ég og Jónas að fara í smá ljósmynda leiðangur og láta okkur verða kalt, en hérna er ennþá snjór og kalt, í nótt var -6° en á daginn er þetta um 0°
Á morgun fer ég svo í mat til Frænda á Asköy, hann hringdi áðan og bauð mér í ribbe eins og hann kallar það, eða pinnekjött. Hann var alveg búinn að gleima að hann ætti þetta og nú var hann búinn að útvatna kjötið og ætlaði að bjóða okkur Ollu, en þar sem Olla er ekki heima þá sagðist hann verða að bjóða einhverjum öðrum því að hann væri með svo mikið kjöt.