hef verið að gæla við það að setja upp nýtt blogg kerfi, færa mig yfir í Wordpress, hef prufað það áður en var ekki ánægður en það er mikið meiri stuðningur við wp en þetta kerfi sem ég er að nota, samt hefur þetta kefir dugað mér vel fram til þessa og því er ég aðeins ragur við að skipta. Svo er þekking mín á gagnagrunnum ekki mikil og ég veit ekki hvernig ég get fært gamla gagnagrunnin yfir á nýja bloggið. þetta er enn allt í hausnum á mér og sennilega gerist ekkert á næstunni.
Olla átti afmæli 4 feb, út að borða og svo kökur og kræsingar um helgina.
Og ekki má gleima Brýndísi sem var í heimsókn, ég fékk formlega kvörtun yfir því að ég hafi ekki mynnst á að hún væri að koma í heimsókn en það var bara ekki rétt því að ég skrifaði um það fyrir ekki svo löngu síðan. Bryndís og Olla kíktu í bæinn og sennilega h&m í leiðini, en það kemur fyrir þegar að það koma gestir að H&M er efst á forgangslistanum.
Olla er farin til Íslandi og verðu í einn mánuð, það þýðir að ég verð tíður gestur hjá þeim sem eiga mat og nenna að elda ofan í mig, annars keypti ég svakalegt nautakjöt um daginn sem ég ætla að elda, veit bara ekki hverjum ég á að bjóða í mat því að þetta er 1,5 kg og þegar að ég er búinn að afþýða það verður ekki aftur snúið. Ef einhver er nóu kræfur til að bjóða sig fram þá er möguleiki að gera það núna. (það skal tekið fram að þetta verður eldað og étið heima hjá mér).
Klassískur slagari frá The Jam