Á morgun spila Ísland og Noregur í hanbolta á EM, eftir ósigur Norðmanna á móti Dönum hefur ekki verið minnst á leikinn á morgun, öll athygglin beinist að leiknum í gær og hvað fór úrskeiðis. Dómarinn átti af sjálfsögðu stærstan hlut í ósigri norðmanna svo það fari ekki framhjá neinum, það segja fjölmiðlar allavega...

Olla er farin til Sverige að hitta Bryndísi, fór með lestinni í gærkvöld og ætti að vera komin (hringi á eftir til að tékka á henni). Svo koma þær systur hingað á sunnudaginn og verð í viku en þá fara þær báðar til Íslands. Olla er að fara að skrifa lokaritgerðina fyrir námið og verð ég einn í mánuð eða svo. En allt lítur út fyrir það að ég verði hérna í Bergen í einhvern tíma því að það er brjálað að gera hjá okkur í vinnuni og þurftum við að fá aðstoð frá UK til að komast yfir allt sem við erum með.
Á laugardaginn ætla ég svo að bjóða vinnufélögunum heim í mat og elda eitthvað gott ofan í þá.
Það er ekki nó með að það sé brjálað að gera í vinnuni heldur er þorrablót hjá okkur í næsta mánuði (19. feb) og er ég bæði í skemmtinefnd og stjórn, auk þess sem ég sé um heimasíðu félagsins, skemmtiatriðin eru öll í vinslu og matarföng eru komin í pöntun, vegna fólksflótta frá Íslandi hefur fjöldi Íslendinga flutt til Bergen og lítur út fyrir að þetta verði stærsta þorrablót íslendingafélagsins í langan tíma.
Allt gamanefni er vel þegið! vísur, kreppu brandarar, Norðmanna og Íslendinga húmor...
má senda á mailið mitt eða facebook
janúar mánuður er ekki skemmtilegur mánuður fyrir bankabókina, það koma allir hugsanlegir og óhugsanlegir reikningar í janúar. Ef einhverjum útrásavíkingi vantar að koma undan nokkrum millum get ég tekið við þeim.
Í morgun þegar að ég vaknaði... Já besta að fara nánar út í það. Við fengum gjöf um daginn, vekjaraklukka með lampa, svona græja sem vekur mann rólega, fyrst byrjar ljósið að lýsa mjög dauft og svo eykst birtan með hverri mínótu, svo þegar að klukkan á að hringja þá kemur fuglasöngur og maður vaknar hægt og rólega, voðalega þægilegt. Fyrstu dagana fór ég allt í einu að muna draumana mína (man aldrei drauma) en ástæðan er að maður er að vakna hægt og rólega, en fyrsti draumurinn var ekkert skemmtilegur, mig dreymdi nefnilega að ég hefði skitið á mig, var alveg í vandræðum og þorði varla að kanna máli, sem betur fer var þetta bara draumur.
Svo ég haldi nú afram með morguninn í morgun þá var helli rigning, en hér er búið að vera frost frá því fyrir jól og talsverður snjór, rennurnar á þakinu voru fullar af snjó og klaka þannig að vatnið fossaði fram af þakinu, ég átti alveg eins von á því að rennurnar lægju í jörðinni þegar að ég kæmi heim úr vinnu en svo var ekki. Rigning í dag og nú er byrjað að frysta, spáð -6° frosti um helgina.