Sennilega eru allir búnir að fá mikið meira en nó af þessu máli en allir hafa skoðun á því og er ég engin undantekning.
Fyrir 2 vikum var ég alveg á því að skrifa undir þessa samninga og bara byrja að borga og klára þetta sem fyrst. Ríkisstjórnin, stjórnarandstaða og fjölskyldurnar sem áttu Ísland brugðust og allan tíman hélt ég að íslendingar ættu snjöllustu peningamenn í heimi, keyptu upp hvað sem er og hvar sem er. Mér fanst Björgólfarnir töffarar og hélt að þeir væru að gera frábæra hluti, ég er að sjálfsögðu bara peð í þessum leik og eina sem ég fékk út úr þessu voru ótakmörkuð lán sem voru í boði. Sem betur fer notfærði ég mér það ekki og þakka fyrir að hafa misst vinnuna á sínum tíma og tekið ákvörðun um að flytja úrlandi, þetta var 2-3 árum fyrir kreppu, ég seldi litla íbúð sem ég hafði keypt nokkrum árum áður og hagnaðist um nokkrar krónur á því. Peningin flutti ég til Noregs og notaði sem innborgun í íbúð. Ég var skuldlaus á Íslandi og átti íbúð í noregi.
Ég fékk vinnu og sagði vinnufélögunum hreikinn frá öllum félögunum sem Íslendingar ættu, þetta voru engar smá eignir og flott félög, mér fanst Norðmenn vera nískir og algjörir kommúnistar í hugsun. Það tók mig 2 ár að ná mér niður eftir að ég flutti til Noregs, allt gekk hægar fyrir sér, umferðin, pósturinn, umsóknir, hvað sem var. Alltaf hélt ég því fram að Íslendingar væru langt á undan þessari afturhaldssömu þjóð. Í eitt skiptið sem ég kom í heimsókn til Íslands ofbauð mér hraðinn og bruðlið sem var í gangi á Íslandi, það var kanski þá að ég fór að hugsa um að kanski væri þetta ekki svo slæmt í Noregi, hlutir taka sinn tíma og allt þarf ekki að gerast á nóinu.
Í dag er ég algjörlega kominn í rólega gírinn og reikna með að hlutirnir taki tíma, hvers vegan eiga Norðmenn pening, þeir kaupa ekki nýtt til að tolla í tískunni, þeir kaupa nýtt vegna þess að það gamla er ónýtt.
Og eitt af því sem ég hef tekið eftir er þessi sjálfsdírkun Íslendinga, við erum best og allt það. Gott dæmi er það sem er að gerast akkurat núna, íslendingar fyllast bjartsýni vegna þess að einhverjir blaðamenn fundu á netinu einhverja útlendinga sem vorkenna Íslendingum, hvað fólk er þetta, þetta eru bloggarar eins og ég sem eru að segja sína skoðun og með því að byrta nokkrar greinar í fjölmiðlum á Íslandi detta Íslendingar í þann gírinn að nú er okkur borgið, fólk vorkennir okkur og sér að við höfum rétt fyrir okkur. Því miður held ég að þetta sé ekki svona einfalt.
En ég get verið óttarlegur Ragnar Reykás og skipt um skoðun án fyrirvara. T.d eftir að Óli grís neitaði að skrifa undir IceSace lögin var ég bara alveg sáttur, þó svo að ég hafi verið búinn að ákveða að hann ætti að skrifa undir þau svo að það væri hægt að fara að ljúka þessu. Ég hef ekki haft mikla trú á grísnum fram að þessu en núna finst me´r ahnn hafa staðið sig vel.
En í stuttu máli þá slapp ég við okur lán og flutti til Noregs, náði að róa mig niður og er sjálfsagt farinn að hugsa eins og norðmaður (og líkar það vel). Af sjálfsögðu vonast ég til að þetta IceSave dragist ekki mikið lengur og fái farsælan endi, en sama hvernig á málið er litið þá held ég að Íslendingar þurfi að borga þetta til baka.
Allt þetta mál er búið að snúa mér í marga hringi hvað varðar pólitík og í dag myndi ég kjósa allt annað en ég gerið síðast.
Mikið held ég að einhverjir verði ringlaðir af því að lesa þetta, ég skil þetta varla sjálfur....

Í dag hef ég verið heima, er enn með kvef en mikið skárri en undanfarna daga, skrapp meira að segja í bíó í gær með Birki og sá Avatar í 3D, stóð undir væntingum og vel það. Ég setti upp linux á gamla tölvu sem ég á, það lofar góðu !
