Það mætti halda að ég hafi verði að fagna nýja árinu með stæl þetta árið, ég er ekki enn búinn að klæða mig síðan á nýársnótt, lá í sófanum í allan gær dag og glápti á sjónvarpið, horfið á annálana og svo skaupið sem mér fans mjög gott.
Á gamlárskvöld komu nokkrir gestir til okkar, þetta var eiginlega svona fjölþjóða hús hérna hjá okkur, ekki margmennt en góðmennt. 2 Íslendingara, 1 frá Bosníu, 1 frá Braselíu og 3 frá Noregi. Við vorum með kalkún í matinn sem heppnaðist 100% Olla fór hamförum í eldhúsinu. Svo kom Ina með desert sem var hrikalega góður, ég át yfir mig í fjórtánda sinn á 2 vikum. Svo var annar í kalkún í gær og nú er ég farinn að hugsa til kalkúnssins og reykna með að fara að starta þriðja í kalkún.
Engin áramóta heit voru strengd þetta árið, ég geri mitt besta í því sem ég tek mér fyrir hendur...
Úti er -9° og ég er búinn að kveikja upp í arninum, það eru nokkrir viðarkubbarnir búnir að brenna yfir hátíðarnar, enda verið kalt úti. það er spáð frosti svo langt sem spáin nær.
Vinna á mánudaginn og þá hrekkur allt í eðlilegan farveg aftur.
Ég er ekki enn búinn að setja inn yndir frá fjallgönguni minni á gamlársdag, en þær koma.