Jæja þá þessum kafla lokið og nýr að hefjast, á föstudaginn vann ég minn síðasta dag hjá Möller, ég er búinn að eiga mjög góðan tíma á verkstæðinu hjá þeim og eignast góða vini, læra mikið og ekki minnst fengið skilning og hjálp við að komast inn á nýjan vinnustað í nýju landi. Grúbban sem ég var í sem lengst er alveg frábær og eru strákarnir þar búnir að reynast mér vel, við ætlum að halda sambandinu og spila squash eins og við gerðum í fyrravetur. Eins og ég var búinn að
skrifa um í síðasta blogginu þá var ákvðið að við hittumst og færum út að borða og í bíó, við fóru á Batman á laugardaginn (sem mér fanst ekkert spes, frekar svona barnamynd) og svo útað borða á eftir, við fórum á Steakers og fengum góðan mat með ömurlegri þjónustu. Þetta er steikhús sem é hef farið nokkrusinnum á og fengið mjög góðan mat og góða þjónustu, en ekki í þetta skiptið, þurftum að bíða mjög lengi eftir matnum og svo var þjónninn ekki skærasta peran í húsinu. T.d þegar að ég ætlaði að gera upp eftir matinn var með pening og ætlaði að borga restina með korti spurði þjóninn, " ert þú góður í að reikna í huganum" hún ætlaði að láta mig segja sér hvað ég ætti að borga mikið í mismun. DU sagði ég finndu þér reiknivél og gerðu þetta allmennilega.
Við Olla fengum brúðargjöf frá verkstæðisklúbbunum (ekki möller) voða fína glerplatta eða disk, handmálað og virkilega fínt, svo undir matnum á Steakers fékk ég gjöf frá strákunum á verkstæðinu, risastóra fjarstýrða þyrlu, ég á eftir að fara út og fljúga en geri það um leiðog veður leifir.
Eftir matinn fórum við á einhvern stað og þar var þjórað í 2-3 tíma, þá fór hópurinn að tvístrast og ákváðum við að fara á einvhern annan stað, við enduðum á einhverjum uppastað þar sem kostaði helling inn og allt var stappað, sviti og uppalið með briljantín í hárinu, en við innganginn var ég spurður um nafnskirteini (20 ára aldurstakmark) ég fékk miki hrós frá viðstöddum.
Í dag gerði ég svo helmingin af því sem ég ætlaði að gera, ég sló grasi, festi ekki upp nýju ljósin sem ég ætlaði að gera, geri það á morgun ef að það verður ekki rigning.
Annað kvöld er ég að fara á tónleika með Neil Young, hlakkar ekkert smá til, vonandi verður baa gott veður, núna er byrjað að rigna og kominn vindur.
Borðuðum KFC/INGTHOR í kvöld, er að verða búinn að fullkomna uppskriftina, reikna með að bjóða fósturfjölskyldunni í KFC/INGTHOR og fá dóma frá þeim...