Eins og þið hafið eflaust orðið var við hefur ekki verið mikið skrifað hérna síðustu vikur, ástæðan er einföld, leti og mikið að gera. Það þarf eflaust ekki að útskýra letina neitt sérstakleg, en við erum búin að vera með gesti, ættleiða, kaupa nýtt hús, skipta um vinnu, vinnuferðir, selja íbúð, planleggja sumarfríið og pakka niður.
Við fáum nýja húsið afhent á sunnudaginn, ég ætla rétt að vona að ég verði heima en nú er ég staddur í norðursjónum á „Skarf“ svæðinu, nánar tiltekið á Polar Pioneer pallinum. Við erum búin að pakka talsvert niður en samt góður haugur eftir, við þurfum að afhenta okkar íbúð 22 apríl þannig að við höfum ekki tíma fyrir neitt vesen. Þetta kemur sennilega allt til með að ganga upp og við verðum flutt inn eftir nokkra daga.
Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að fara að gera þegar að þessari vinnu líkur, langar til að halda mig í þessum geira en opinn fyrir öllu.
Við ætlum að fara til íslands í maí, tökum ferju frá Danmörk og siglum til Seyðisfjarðar, ætlum okkur að vera fyrir austan og eitt brúðkaup fyrir norðan, í allt 4 vikur.
Vonandi kemst ég heim fyrir helgi, er á næturvakt, eins og allt of oft finnst mér fólk verða svakalega latt á næturvakt og í gær hefði ég getað gert mikið meira ef aðstoðarmennirnir hefðu nennt að hreifa sig, en ég breiti því ekki. Ég held mínu striki og klára það sem ég á að klára í kvöld, þá er eftir að gera nokkur próf sem ég þarf að vera vitni að. Ég held svei mér þá að ég gæti hugsað mér að vinna á olíuborpalli, það er farið mjög vel með mann hérna og öryggi er ofar öllu, maturinn er mjög góður og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég er búinn að vinna á þó nokkrum olíuborpöllum og eru þeir Norsku alltaf til fyrirmyndar. En það er ekki svo auðvelt að fá vinnu á borpalli, ég talaði við eitt fyrirtæki fyrir nokkrum vikum þeir auglýstu eftir 7 stöðum og fengu 400 umsóknir.
Mamma og Sigurður Eyþórsson áttu afmæli í gær, til hamingju bæði tvö.
Farinn að gera mig klárann fyrir næstu vakt, 19:00 – 07:00.
p.s. Ég ætla ekki að bjóða mig fram sem forseta, ég hef ekki tíma.


Nýlegar athugasemdir